Mannlíf

Magnús & Jóhann – Aftur heim
Þriðjudagur 14. febrúar 2023 kl. 13:23

Magnús & Jóhann – Aftur heim

Þeir Magnús og Jóhann snúa aftur heim í Stapa með stórtónleika í Hljómahöll þann 3. mars. Þeir hafa gefið út fjölda laga í gegnum tíðina sem allir landsmenn þekkja. Má þar á meðal nefna lögin Álfar, Söknuður, Ást, Blue Jean Queen, Jörðin sem ég ann, Í Reykjavíkurborg, Þú átt mig ein, Yakety Yak, Mary Jane, Seinna meir, Ísland er land þitt og þannig mætti áfram telja.

Þetta verður kvöldstund sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara. Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00. Miðasala er hafin á hljomaholl.is

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024