Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Love Guru kemur Bumpinu aftur í tísku á 50 ára afmælinu!
Föstudagur 29. apríl 2022 kl. 18:16

Love Guru kemur Bumpinu aftur í tísku á 50 ára afmælinu!

Love Bump 22 er ný útgáfa Love Guru af fyrsta laginu sem Boney M gáfu út, Baby do ya wanna bump sem kom út árið 1975. Hér er sungið um þokkafyllsta dans sögunnar, The Bump, sem á einmitt 50 ára afmæli um þessar mundir.

 „Það kom ekkert annað til greina en að einn þokkafyllsti tónlostamaður landsins myndi heiðra þennan þokkafyllsta dans sögunnar,“ segir Love Guru þegar hann var spurður út í tilurð þessarar nýju útgáfu. „Ég hef bumpað nánast frá fæðingu. Ég var fæddur til að bumpa,“ bætti Gúruinn við.

Lagið er uppfullt að gleði og góðu stuði og mun færa „bumpið“ aftur upp á yfirborðið. „Það er löngu kominn tími til þess að koma bumpinu aftur í tísku,“ segir Love Guru.

Public deli
Public deli

Með laginu fylgja tvö myndbönd, textamyndband þar sem sjá má fólk bumpa af mikilli erótík in the 70's (kemur út á föstudaginn) og hjólaskautamyndband þar sem allar helstu hjólaskauta stjörnur landsins leika listir sínar ásamt húlla gellu og jögglara. Óþarfi er að deila um að það myndband er án nokkurs vafa það allra besta sem Love Guru hefur sent frá sér.

Myndband með laginu má sjá í spilaranum hér að neðan.