Mannlíf

Kvöldstund með klarinettum
Mánudagur 8. ágúst 2022 kl. 11:34

Kvöldstund með klarinettum

Sumartónar í Hvalsneskirkju

Annað kvöld, þriðjudag 9. ágúst, kl 19:30 verða tónleikarnir Kvöldstund með klarinettum í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ.

Grímur Helgasons og Kristín Þóra Pétursdóttir munu leika á klarinett bæði einleiksverk og dúetta frá Mozart til okkar tíma.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Aðgangseyrir er 2.500 krónur.

Tónleikarnir eru hluti af tónleikarröðinni Sumartónar í Hvalsneskirkju og eru styrktir af Uppbyggingasjóði Suðurnesja og Tónlistarsjóði.


Dagskrá tónleikanna:

W. A. Mozart (1756–1791)

Sex stuttir dúettar KV 487

Allegro
Menuetto & Trio
Adagio
Polonaise
Larghetto
Allegro

Béla Kováks (1937–2021)

Hommage á Manuel de Falla, fyrir piccolo klarinett í Es
Béla Kováks
Hommage á J. S. Bach, fyrir bassaklarinett

Igor Stravinsky (1882–1971)

Þrír þættir fyrir einleiksklarinettu

Snorri Sigfús Birgisson (1954)

Fimm íslensk þjóðlög

Einn  guð í hæðinni
Hættu að hrína Mangi minn
Músin hljóp um altarið
Inni Kola, amma bola
Sofðu þér nú sætan dúr 

Bernhard Crusell (1775–1838)

Duetto op. 6 Nr. 2
Allegro agitato ma non troppo
Siciliano
Rondo alla Svedese