Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Keilir tekur saman reynslusögur úr fjarnáminu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 26. mars 2020 kl. 14:21

Keilir tekur saman reynslusögur úr fjarnáminu

Keilir á Ásbrú mun á næstu dögum og vikum taka saman reynslusögur, góðar starfsvenjur og myndir af fjarnámsaðstöðu kennara og nemenda bæði í og utan Keilis undir myllumerkinu #skólastofanmín. Þessar myndir og sögur geta vonandi orðið öðrum hvatning og innblástur eða í það minnsta tækifæri til að sjá hvernig fólk er að aðlagast þessum breyttu tímum, segir í frétt frá Keili.

 Líf okkar allra hefur tekið miklum breytingum á þessum undarlegu tímum sem við lifum í augnablikinu. Þar er skólastarf svo sannarlega ekki undanskilið. Sendið gjarnan ykkar sögu, góðar starfsvenjur, myndir, reynslu eða hvað annað sem þið viljið deila með öðrum á okkur á netfangið [email protected] og merkið póstinn með #skólastofanmín, segir jafnframt í fréttinni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024