Mannlíf

Jólahangkjötið borðað á Zoom
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 18. desember 2021 kl. 05:11

Jólahangkjötið borðað á Zoom

Gísli Hlynur Jóhannson, rekstararstjóri Húsasmiðjunnar borðaði jólahangikjötið „rafrænt“ um síðustu jól með systkinum sínum og gerir það aftur í ár. Jólahefðirnar hafa breyst hjá honum og fjölskyldunni og það er mikið skreytt á heimilinu. Jólatónleikarnir eru líka rafrænir í ár hjá Gísla og fjölskyldu sem hér svarar jólaspurningum Víkurfrétta.

Hvernig hagar þú jólagjafainnkaupum?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég er  að tína þetta til svona seinni hluta árs, hér og þar. Lítið að kaupa á netinu. Aðal jólagjafirnar í ár  handa barnabörnunum koma frá LEEDS.

Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? 

Þær byrjuðu fyrr í fyrra en vanalega, flest allir heima út af „Covid“ og svo var þetta svipað nú í ár.  Í byrjun nóvember var allt komið á fullt, bæði úti og inni.

Skreytir þú heimilið mikið? 

Já, mjög mikið og höfum við hjónin mjög gaman af því. Barnabörnin fá að njóta þess líka þegar þau koma í heimsókn og þeim  finnst spennandi að fá að skoða jólasveinana og leika sér aðeins með þá.

Áttu þér uppáhalds smáköku? 

Mömmu-kökurnar eru alltaf bestar!

Eru fastar jólahefðir hjá þér? 

Þær hafa aðeins breyst, börnin  eru farin að bjóða okkur í mat á aðfangadag. Á jóladag er  hangikjöt fyrir fjölskylduna í hádeginu. Síðan höfum við systkinin haldið hangikjöts hefð foreldra okkar og skipst  á að vera með hangikjöt um kvöldið á  jóladag. En Covid hefur sett strik í reikninginn þar. Við prófuðum að vera með þetta á Zoom í fyrra og tókst það bara ágætlega og verður það aftur svoleiðis í ár. Hópurinn okkar systkinanna er  þar að nálgast að vera 50 með öllum börnum, tengda-, og barnabörnum.

Hvernig er aðventan - hefðir þar?

Höfum ofast farið á einhverja tónleika, en höfum ekki farið núna í þessu Covid ástandi, heldur höfum við bara keypt streymi af tónleikum sem er alveg þægilegt líka. Við bökum nokkrar smákökutegundir, soðið brauð og flatkökur. Við eigum fjögur barnabörn og voru þau öll hjá okkur helgina 10.-12. des. Þá voru bakaðar piparkökur. Málað að sjálfsögðu og allir jólasveinarnir teknir í gegn og leikið sér með.

Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jólaminningu?

Spennan var alltaf mikil á aðfangadag og  var alltaf tekinn upp einn pakki meðan var verið að ganga frá eftir matinn.

Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina?

Ég gerði það alltaf með pabba þegar hann var á lífi, þá fórum við í messu kl. 18:00 og mamma sá um að klára undirbúninginn. Svona í seinni tíð höfum við ég og konan mín stundum farið í miðnæturmessu.

Eftirminnilegasta jólagjöfin?

Það eru gjafir frá börnunum, þá sérstaklega myndir af börnunum okkar og fjölskyldu. Líka myndir á dagatali frá þeim frá liðnu ári.

Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf?

Skemmtilegast að fá myndir af börnum okkar, barnabörnunum of fjölskyldu.

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat?

Það voru hefðir með hamborgarhrygg, en hefur minnkað mikið. Hreindýrið er að yfirtaka gömlu hefðina.