Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Jóladagur er heilagur náttfatadagur
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 18. desember 2021 kl. 06:35

Jóladagur er heilagur náttfatadagur

Bjarney S. Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum, á skemmtilegar jólaminningar þegar hún var hjá ömmu sinni og afa þegar hún var lítil. Í lögreglunni hefur vaktavinna haft áhrif á jólahefðir fjölskyldunnar en jóladagur er þó heilagur náttfatadagur.

Hvernig hagar þú jólagjafainnkaupum?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Misjafnt en þetta árið hef ég verslað helming þeirra á netinu.

Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár? 

Örlítið fyrr í ár. Hef reyndar alltaf geymt að setja jólatré upp skömmu fyrir aðfangadag en hef lofað dóttur og eiginmanni að vera fyrr á þessu ári.

Skreytir þú heimilið mikið? 

Passlega en eykst með auknum áhuga barnanna.

Bakarðu fyrir jólin og ef hvað þá helst? Áttu þér uppáhaldssmáköku? 

Nei en vildi að ég væri myndarlegri hvað það varðar. Sem barn voru vanilluhringir og kókoshringir mitt allra uppáhalds.

Eru fastar jólahefðir hjá þér?

Nei, get ekki sagt það. Lögreglustarfið hefur að hlutað til mótað það þannig hjá okkur. Vaktavinnan hefur verið fyrirferðarmikil í fjölskyldunni og því ekki að festa okkur í hefðir. Jóladagur er reyndar heilagur náttfatadagur. 

Hvernig er aðventan – hefðir þar? Er Covid að trufla undirbúning jólanna? 

Engar hefðir á aðventunni. Við erum ekki að láta Covid trufla undirbúninginn heldur reynum við ræða það sem minnst. Mikilvægt að vera jákvæður.

Hveru eru fyrstu jólin sem þú manst eftir? Áttu skemmtilega jólaminningu? 

Fyrstu jólin sem ég man eftir eru á Hringbrautinni hjá móðurafa og ömmu. Þar var yndislegt að vera og finna hlýju þeirra og elsku. Sú jólaminning sem kemur fyrst í huga minn er frá 1984 þegar ég og Guffi frændi vorum að líka eftir Þórði húsverði og Bryndísi. Guffi var snemma hnyttinn og uppátækjasamur og ekkert eðlilegra en að leika þau fimm og sex ára gömul.

Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina? 

Nei.

Eftirminnilegasta jólagjöfin? 

Engin ein, hver þeirra eftirminnileg á sinn máta.

Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf? 

Gönguskó

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? Eru hefðir í mat? 

Kalkúnn og tilheyrandi. Vonast til að eiginmaðurinn útbúi jólaís líkt og hann gerði síðustu jól. Hefðirnar hafa breyst. Áður var það hamborgarhryggur en höfum valið að fara aðeins „léttari“ leið síðustu ár.