Mannlíf

Hollywoodbragur á Hafnargötunni
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
föstudaginn 2. desember 2022 kl. 16:15

Hollywoodbragur á Hafnargötunni

Gervisnjór, snjósleðar og veiðivöruverslun er meðal þess sem sjá má á Hafnargötunni um þessar mundir en uppsetning leikmyndar fyrir þættina True Detective hefur verið í fullum snúningi. Þá hefur gatan verið tekið á sig nýja mynd og líkist nú götum Alaska. Paddy’s er einn af þeim stöðum sem hafa tekið miklum breytingum í bæjarfélaginu vegna þessa en staðurinn er nú kominn í búning hamborgarabúllunar Qavvik’s Burger Joint.

Björgvin Ívar Baldursson, einn eigenda Paddy’s, segir verkefnið vera skemmtilegt og það myndi góða stemmningu í bænum. „Þetta er mjög skemmtilegt, nú er búið að breyta Paddy’s í hamborgarastað eins og sjá má á utanverðu húsinu. Það er búið að skipta um innréttingar og mála og svo er búið að breyta efri hæðinni í íbúð sem verður eitthvað notuð við tökur,“ segir Björgvin. Aðspurður hvað honum finnist um áhrif þáttagerðarinnar á starfsemi þeirra segir hann: „Það er hluti af þessu, þetta er samstarfsverkefni og við gerðum samning um leigu á húsnæðinu í rúmar þrjár vikur. Það er svekkjandi fyrir bæjarbúa að missa af Paddy’s í þennan tíma en þessu fylgir ákveðin stemmning.“

En hvers vegna varð Hafnargatan fyrir valinu?

„Ástæðan fyrir því að þau eru að gera þetta þar er að þau voru svo hrifin af götumyndinni á Hafnargötunni. Það var pæling að taka þetta upp annars staðar, þar sem væri raunverulega snjór á þessum tíma, en þau voru bara svo hrifin af götumyndinni akkúrat þarna. Paddy’s varð svo fyrir valinu því þau voru að skoða fullt af stöðum og ráku augun í hann. Þau voru að leita að einhverju sem gæti verið matsölustaður og þau fengu að skoða staðinn og þetta passaði einhvern veginn allt svo vel fyrir það sem þau höfðu í huga. Það er gaman að fá að taka þátt í þessu og þetta skapar smá líf á Hafnargötunni og myndar góða stemmningu í bænum, það er alltaf gaman þegar það er eitthvað jákvætt í gangi sem allir eru að tala um,“ segir Björgvin.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024
Áætlað er að Paddy’s opni aftur í þeim búning sem bæjarbúar þekkja hann 9. desember en stendur til að halda í við eitthvað af leikmyndinni?

„Við megum gera það og þetta eru mjög drastískar breytingar en það fer mestur tími í undirbúning og frágang. Ég efast um að við höldum í við eitthvað af þessu, samningurinn segir að þessu verði skilað eins og þetta var en þetta er svo sem allt gert í góðri samvinnu við okkur og hvernig við viljum hafa þetta.“

Hlakkið þið til að sjá Paddy’s á skjánum?

„Mér skilst samt að meirihlutinn af þáttunum gerist nú ekki þarna, þessi leikmynd mun bara birtast í nokkrar mínútur hugsa ég en það er mikið fyrir þessu haft og verður gaman að sjá hvernig þetta mun koma út.“

Sjáðu myndir af Hafnargötunni í nýjum búning hér að neðan

Hollywoodbragur á Hafnargötu