Mannlíf

Höldum í gamlar hefðir
Marta Eiríksdóttir
Marta Eiríksdóttir skrifar
fimmtudaginn 24. desember 2020 kl. 07:11

Höldum í gamlar hefðir

Jónína Guðjónsdóttir er eiginkona Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ

„Aðventan finnst mér dásamlegur tími og nýt þess að skapa notalega stemmningu heima. Ljósin útí glugga, kertaljósin, tónlistin, jólailmur, grenið og ekki síst túlipanarnir og svo er rauður amaryllis í uppáhaldi. Samveran við fjölskyldu og vini skapar stóran sess í hefðinni á aðventu en við stórfjölskyldan færðum okkar boð yfir á aðventuna. Vinahópurinn borðar saman villibráð. Vinkonuhópar hittast í notalegri stemmningu, tónleikar og hefðbundinn undirbúningur jólahaldsins,“ segir Jónína Guðjónsdóttir, eiginkona Kjartans Más Kjartanssonar, bæjarstjóra í Reykjanesbæ.

„Við höldum í gamlar hefðir og bjuggum líka til okkar eigin hefð í matargerð. Á aðfangadag erum við með kalkúnabringu og hnetu­steik. Við fjölskyldan borðum andar-confit á milli jóla og nýárs og svo er breytilegt hjá okkur á gamlárskvöld. Ég geri alltaf heimatilbúinn ís sem ég ólst upp við og kom frá ömmu minni Ástu og kókostertu í eftirrétt. Á jóladag er algjör afslöppun en seint á jóladagskvöld kemur hópur góðra vina í heimsókn. Okkur þykir vænt um þessa hefð sem staðið hefur yfir frá því að við byrjuðum að búa. Þá er spjallað og stundum spilað. Það er líka hefð hjá okkur að fara í kirkju yfir jólahátíðina.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það fer lítið fyrir smákökubakstri núorðið en ég á góða að sem færa okkur sörur. Okkur finnst stemmning á þessum árstíma í því að borða og bjóða upp á allskonar villibráð, paté, grafna gæs, önd, osta, lax og fleira þegar gesti ber að garði. Alltaf tilhlökkun að borða rjúpur með matarklúbbnum okkar en sjálf var ég alin upp við rjúpur á aðfangadag ásamt hamborgarhrygg en ég lærði ekki að meta rjúpurnar af neinni alvöru fyrr en í seinni tíð.

Besta við jólin er ef maður nær að slaka á og njóta með fólkinu sínu. Jólin leggjast bara vel í mig, maður er orðinn vanur að hitta fáa í einu svo ef ég fæ að hitta mitt nánasta fólk verður þetta í góðu lagi.

Já, ég er jólabarn og er svo heppin að jólin kalla fram góðar tilfinningar hjá mér. Ég á hlýjar minningar frá mínum bernskujólum og vona að maður hafi náð að koma því svo áfram til barna og barnabarna. Við eigum þrjú uppkomin börn og fimm ömmu- og afastráka og tvo á ská, samtals sjö myndarlega pilta á aldrinum tveggja til ellefu ára.

Ég skreyti hóflega, við erum alltaf með lifandi jólatré sem við kaupum af Kiwanis og setjum upp viku fyrir jól. Þá finnst mér jólin vera komin. Ég skreyti líka sveitabæ fjölskyldunnar á Hvalsnesi en þar ríkir mikil kyrrð og þangað finnst vinum og fjölskyldu gott að koma á aðventunni.

Mér finnst gott að búa í Reykjanesbæ. Við hjónin erum hér fædd og uppalin og höfum bæði búið hér alla okkar ævi nema á námsárunum þá bjuggum við í Reykjavík. Hér er fólkið okkar flest og hér eigum við marga góða vini.

Mér finnst einkennandi fyrir aðventuna hversu mikil samstaða er á meðal íbúa og hversu vel og dyggilega fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar eru að styðja við og styrkja Velferðasjóð kirkjunnar og fleiri aðila sem láta sig varða að sinna þeim sem eru hjálparþurfi.

Svo er líka gaman að sjá að bæjarbúar tóku sig saman og eru fyrr á ferðinni í ár með ljósin í gluggum og skreytingar, sem er frábært í þessu mikla skammdegi.

Mér finnst alltaf stemmning á Þorláksmessukvöld í bænum okkar, fullt af fólki í miðbænum, lúðrasveit Tónlistarskólans spilar jólalög og jólasveinarnir á ferðinni. Það er gaman að sjá hversu vel nýi Aðventugarðurinn er að falla í kramið hjá íbúum þar sem markmiðið er að lýsa upp svartasta skammdegið og skapa góða og notalega stemmningu fyrir fjölskylduna í aðdraganda jóla.“

Hnetusteikin hans Péturs

400 gr blandaðar hnetur
(cashew, hessel o.fl.)

2 stk kúrbítur

1 stk laukur

4 gulrætur

6 blöð blaðlaukur

300 gr sveppir

200 gr sellerírót

½ ferskur chilli

10 gr engiferrót

3 stk fáfnisgras (estragon)

1 stk kjúklingateningur

1 dós kókosmjólk

Aðferð:

Laukur í pott gullbrúnaður, kúrbítur sneiddur og látinn malla með lauknum. Gulrætur, blaðlaukur, sveppir, sellerírót, engiferrót og chilli saxað út í, kókosmjólk hellt út í gumsið.

Kryddað með estragoni, tening og pipar. Hnetur setttar í matvinnsluvél og grófmalaðar.

Hnetur léttristaðar á pönnu og settar í pottinn.

Hægt að þykkja með haframjöli, u.þ.b. 1 bolla.

Sett inn í 200 gráðu heitan ofninn og bakað í 30–40 mín

Kókosterta með frostnu rjómaþaki

4 egg

140 gr kókosmjöl

140 gr flórsykur

Aðskiljið eggjarauður og hvítur og þeytið eggjahvítur vandlega með fljórsykrinum. Blandið kókosmjölinu varlega saman við með sleikju og setjið deigið í smurt lausbotna tertuform.

Bakið botninn við 130-150 gráður í 20–30 mín eða þar til hann er ljósbrúnn að lit. Útbúið kremið á meðan kókosbotninn kólnar.

Krem:

100 gr smjör

100 gr suðusúkkulaði

60 gr flórsykur

4 eggjarauður

Bræðið smjörið og súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið í skál. Blandið flórsykrinum saman við og kælið blönduna vel. Bætið eggjarauðum í og þeytið á fullum krafti þar til kremið verður ljóst og þykkt. Smyrjið kreminu á botninn og látið kökuna standa í kæli fram að framreiðslu.

Frystið einn pela af þeyttum rjóma í sama formi og kakan var bökuð í og leggið ofan á rétt áður en tertan er borin fram.“