Mannlíf

Heillaður af staðleysu­bókmenntum
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
mánudaginn 23. september 2019 kl. 09:42

Heillaður af staðleysu­bókmenntum

Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar er Guðmundur Ingvar Jónsson, kennari í Njarðvíkurskóla og bókmenntafræðingur
auk þess sem Guðmundur sér um leshring bókasafnsins í vetur.

Hvaða bók ertu að lesa núna?
Hin ósýnilegu eftir Roy Jacobsen auk þess að lesa bækurnar um Einar Áskell með börnunum mínum fyrir háttinn.

Hver er uppáhaldsbókin?
Gaukshreiðrið (One Flew Over the Cuckoo‘s Nest) eftir Ken Kesey. Las hana fyrst í enskuáfanga í FS og hún greip mig algjörlega. Horfði á myndina í kjölfarið og er hún ein af uppáhaldsmyndum mínum.

Hver er uppáhaldshöfundurinn?
Charles Dickens, Einar Kárason og Þórbergur Þórðarson.

Hvaða bók hefur haft mestu áhrifin á þig?
Öreindirnar eftir Michel Houellebecq. Hvaða bók ættu allir að lesa? Ofvitinn eftir Þórberg Þórðarson.

Hvar finnst þér best að lesa?
Í sófanum heima eða upp í rúmi undir sæng.

Hvaða bækur standa upp úr sem þú mælir með fyrir aðra lesendur?
Salka Valka og Sjálfstætt fólk eftir Laxness, 1984 og Dýrabær eftir George Orwell, Hamskiptin og Réttarhöldin eftir Franz Kafka og Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson.

Ef þú værir fastur á eyðieyju og mættir velja eina bók til að hafa hjá þér, hvaða bók yrði fyrir valinu?
Þar sem ég er forfallinn stuðningsmaður Liverpool þá yrði það líklega Liverpool Encyclopedia eftir Íslendinganna Árna Baldursson og Guðmund Magnússon.

Næstsíðasta þriðjudag hvers mánaðar kl. 20.00 hittist Leshringur Bókasafns Reykjanesbæjar og skeggræðir áhugaverðar bækur. Allir áhugasamir eru hvattir til að koma og eru allir velkomnir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024