Mannlíf

Heillaðist af ljósmyndun og Reykjanesinu
Jón Hilmarsson
Jón Hilmarsson skrifar
sunnudaginn 26. desember 2021 kl. 06:42

Heillaðist af ljósmyndun og Reykjanesinu

Þráinn Kolbeinsson er áhugaverður ljósmyndari sem hefur m.a. unnið mikið fyrir Markaðsstofu Reykjaness í því að kynna landshlutann sem áhugaverðan ferðamannastað til að sækja.
Þráinn bjó um tíma í Grindavík, þaðan sem konan hans er ættuð, en þau færðu sig nýlega til Reykjavíkur þar sem þau búa núna.

Ein U beygjan eftir annarri

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Ég var lengi vel glímumaður hjá Mjölni, bæði sem þjálfari og keppandi, líklega í ein tíu ár en gerði mér grein fyrir því að þetta væri mögulega ekki starf til lengdar þar sem það reynir mikið á líkamann og skrokkurinn ræður ekki við það endalaust. Ég skráði mig því í sálfræðinám við Háskóla Íslands þar sem stefnan var sett á íþróttasálfræði en útskrifaðist svo sem klínískur sálfræðingur. Ég hóf fljótlega störf sem slíkur og fannst mikil viðbrigði að vera allt í einu kominn í skrifstofustarf – mér fannst það ekki eiga alveg við mig. Á þessum tíma hafði pabbi gefið mér gamla filmuvél sem ég var aðeins byrjaður að fikta með en fyrir tilstilli samstarfsmanns á Landspítalanum keypti ég mér svo loksins stafræna myndavél. Þetta hefur líklega verið árið 2017 og þetta kveikti algjörlega í mér. Áður en ég vissi var ég farinn að nýta hvert einasta tækifæri til að taka myndir, fikra mig áfram við myndvinnslu eða afla mér þekkingar á netinu,“ segir Þráinn.  

Á þessum tíma var þetta eingöngu áhugamál hjá Þráni og það hvarflaði ekki að honum að þetta gæti orðið að atvinnu fyrir hann.

Ljósmyndunin verður að atvinnu

Eftir eitt og hálft ár sem áhugaljósmyndari fóru að detta inn verkefni sem Þráinn fékk greitt fyrir. Þarna voru ekki miklir peningar í spilinu en hann var ennþá að vinna sem sálfræðingur. „Fljótlega fór ég að sjá möguleikana á því að gera meira úr ljósmynduninni. Til að byrja með hélt ég því meira og minna fyrir sjálfan mig en ég vissi hvert mig langaði. Ljósmyndun hentaði mér frábærlega. Þetta var eiginlega fullkomin blanda af hreyfingu og útibrasi og svo tölvuvinnu í hlýjunni.“

Í dag er nóg að gera hjá Þráni en hann hefur unnið þó nokkur verkefni fyrir markaðsstofur landshlutanna, m.a. Vestfjarða, Reykjaness, Austurlands og Íslandsstofu, ásamt ýmis fyrirtæki. Einnig selur hann prentaðar myndir ásamt nokkrum stafrænum vörum í tengslum við myndvinnslu en þær er hægt að nálgast á heimasíðu hans www. thrainnkolbeinsson.com.

Verkefni fyrir Markaðsstofu Reykjaness

Stuttu eftir að Þráinn gerðist sjálfstætt starfandi ljósmyndari fékk hann umfangsmikið verkefni í hendurnar á vegum Markaðsstofu Reykjaness. „Það var ekki fyrr en árið 2018, þegar við við fluttum til Grindavíkur, sem ég áttaði mig á hversu mikil perla Reykjanesið er, bæði hvað varðar einstakt landslag og sem útivistarsvæði. Á þessum tíma vorum nýbúin að eignast strákinn okkar svo ljósmyndaferðir urðu að vera í styttri kantinum. Reykjanesið varð þannig sjálfkrafa aðalviðfangsefnið. Eftir að hafa deilt töluverðu efni af svæðinu komst ég í samband við Markaðsstofu Reykjaness og úr varð skemmtilegt samstarf.

Fyrsta verkefnið gekk út á að búa til heildstætt safn af markaðsefni af Reykjanesinu og taka myndir fyrir ljósmyndabók sem kom svo út árið 2020. Ég er mjög þakklátur þeim fyrir að treysta mér fyrir þessu viðamikla verkefni og ánægður með verkefnin sem hafa unnist síðan. Rétt í þessu erum við að leggja lokahönd á ótrúlega spennandi verkefni þar sem verið er að fara í markaðssetningu, innviðabætingar og almenna kynningu á hinum ýmsu gönguleiðum og fjallgöngum sem Reykjanesið hefur upp á að bjóða. Áður en við vitum af verða Esjan, Úlfarsfell og fleiri fjöll á höfuðborgarsvæðinu komin með almennilega samkeppni.“

Hálendi Reykjaness í uppáhaldi

„Það er alltaf erfitt að velja einhvern einn stað svo ég ætla að velja tvo. Sveifluhálsinn með öllum sínum toppum við Kleifarvatn og umhverfið þar í kring er algjör gönguparadís en það er eiginlega ekki hægt að sleppa því að nefna Sogin og svæðið þar í kring, vötnin þrjú ásamt Grænudyngju og Trölladyngju. Að mínu mati er hálendi Reykjaness vanmetnasta svæðið fyrir utan höfuðborgina, þar sem náttúran hefur skilað af sér landslagi með fallegum vötnum, einstökum hraunborgum, háhitasvæðum og mögnuðum fjallgörðum. Held ég hafi klárað öll lýsingarorðin mín,“ segir Þráinn að lokum.