Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Hefði orðið skelfilega lélegur læknir
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 25. júní 2020 kl. 11:08

Hefði orðið skelfilega lélegur læknir

Unnar Steinn Bjarndal, bæjarlögmaður Reykjanesbæjar, var alinn upp í Biskupstungum Árnessýslu og Ekenäs í Finnlandi. Honum finnst eggið best spælt með öllum vinum sínum úr enskum morgunverði og hann getur verið langrækinn ... en ekki þrjóskur! Unnar Steinn var í netspjalli við Víkurfréttir.

– Nafn:

Unnar Steinn Bjarndal.

Public deli
Public deli

– Árgangur:

1981.

– Búseta:

Bý í Reykjanesbæ ásamt börnum mínum, þeim Þórunni Fríðu (15) og Matthíasi Bjarndal (11).

– Hverra manna ertu og hvar upp alinn?

Foreldrar mínir eru þau Björn Bjarndal Jónsson, skógarverkfræðingur, og Jóhanna Fríða Róbertsdóttir, markaðsfræðingur. Ég er upp alinn í Biskupstungum í Árnessýslu og bænum Ekenäs í Finnlandi.

– Starf/nám:

Ég er hæstaréttarlögmaður, viðskiptafræðingur og með meistarapróf í nýsköpun og lögfræði frá Edinborgarháskóla. Ég gegni starfi bæjarlögmanns Reykjanesbæjar og er lektor við Háskólann á Bifröst.

– Hvað er í deiglunni?

Það er í mörg horn að líta í skemmtulegu starfi hjá Reykjanesbæ og ég geri ráð fyrir að sinna þeim verkefnum samkvæmt bestu getu eitthvað fram eftir sumri. Svo taka við ferðalög innanlands með fjölskyldunni. Hlakka til að njóta alls þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða. Mig langar líka til að rífa mig svolítið í gang eftir COVID-19-inniveru; hlaupa, ganga á fjöll og spila golf.

– Hvernig nemandi varstu í grunnskóla?

Ég held að ég hafi verið í prúðari kantinum. Stundaði námið vel og forðaðist vesen.

– Hvernig voru framhaldsskólaárin?

Þau voru frábær. Ég stundaði námið vel, sér í lagi framan af, en svo áttu félagsmálin hug minn allan. Ég fékk svo aftur áhuga á náminu í tæka tíð.

– Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Foreldrar mínir segja að ég hafi framan af ætlað mér að verða leigubílstjóri í New York. Í bíómyndum væri alltaf sagt „Keep the change“ og þeir þyrftu því ekki að vera góðir í reikningi. Seinna ætlaði ég mér að verða læknir. Ég hefði orðið skelfilega lélegur læknir enda þoli ég hvorki að sjá eigið blóð né annarra.

– Hver var fyrsti bíllinn þinn?

Það mun hafa verið Mitsubishi Lancer árg. 1991. Hann var með spoiler og undir hann fóru álfelgur af bestu gerð.

– Hvernig bíl ertu á í dag?

Ég ek um á Land Rover bifreið.

– Hver er draumabíllinn?

Ég ætla að leyfa mér að nefna tvo. Annars vegar DeLorean bifreið árg. 1985 eins og notuð var í kvikmyndinni Back to the Future. Hins vegar flöskugrænn tveggja dyra Range Rover Classic árg. 1980.

– Hvert var uppáhaldsleikfangið þitt þegar þú varst krakki?

Það hlýtur að hafa verið bolti af einhverju tagi.

– Besti ilmur sem þú finnur:

Íslenskur náttúruilmur. Þessi sem er alltumlykjandi þegar gengið er í fallegri íslenskri náttúru.

– Hvernig slakarðu á?

Gönguferðir og sund, svo eitthvað sé nefnt. Líka skemmtilegir bíltúrar þar sem markmiðið er að skoða eitthvað fallegt eða áhugavert.

– Hver var uppáhaldstónlistin þín þegar þú varst u.þ.b. sautján ára?

Ég hlýt að þurfa að viðurkenna að það hafi verið einhver blanda af sveitaballatónlist (Skítamórall, Land og synir og Sálin hans Jóns míns) og því sem var að gerast á Bretlandseyjum á sama tíma; Radiohead, Oasis, Blur o.s.frv.

– Uppáhaldstónlistartímabil?

Ég finn alltaf eitthvað skemmtilegt að hlusta á af því sem er í gangi hverju sinni. Í dag finnst mér gaman að hlusta á JóaPé og Króla, Auður o.fl. í bland við eldri tónlist.

– Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana?

Auður, GDRN, JóiPé og Króli og Bríet, svo eitthvað sé nefnt. Svo er ég mjög hrifinn af laginu sem Már Gunnarsson og Iva voru að gefa út.

– Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili?

Jóhann Haukur, eldri bróðir minn (f. 1976), fékk „græjur“ í fermingargjöf og hann sá um tónlistaruppeldi mitt. Fyrstu geisladiskarnir hans voru Sálin hans Jóns míns og Tina Turner, eðlilega. Fljótlega í kjölfarið tók hann mikið Queen-æði og ég fylgdi með.

– Leikurðu á hljóðfæri?

Ég lærði á píanó þegar ég var pjakkur búsettur í Finnlandi en ég er hræddur um að sú kunnátta sé að mestu gleymd og grafin.

– Horfirðu mikið á sjónvarp og hvernig?

Sjónvarpsáhorf er vetraríþrótt á mínu heimili. Mér finnst gaman að horfa á heilar þáttaraðir á streymisveitum, t.d. glæpaþætti eins og Breaking Bad, Better call Saul, Narcos, Sons of Anarchy, The Sopranos o.s.frv. Líka gamanþætti eins og The Office (UK & US), Seinfeld o.fl.

– Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu?

Ég missi helst ekki af fréttum. Þá missi ég ekki af Arsenal-leikjum ef mótherjinn er viðráðanlegur. Þeim fer fækkandi því miður.

– Besta kvikmyndin:

Fæ að nefna nokkrar: Wall Street (1987), The Shawshank Redemption (1994), LOTR þríleikurinn (2001–2003), The Godfather (1972), Goodfellas (1990) o.fl. o.fl.

– Hver er uppáhaldsbókin þín og/eða rithöfundur?

Nefni J.K. Rowling, Þorgrím Þráinsson og Gunnar Helgason út af því hversu mikil og jákvæð áhrif þessir höfundar hafa haft á lestraráhuga á mínu heimili.

– Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu?

Ég er enn að reyna að komast að því hvað það gæti verið. Ég er reyndar þrælgóður í að ganga frá og vaska upp.

– Hvernig er eggið best?

Spælt og á diski með öllum vinum sínum úr klassískum enskum morgunverði.

– Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari þínu?

Sem betur fer er enn margt í fari mínu sem hægt er að laga. Ég get verið mjög langrækinn, einhver gæti haldið því fram að ég væri þrjóskur en það væri reyndar rangt.

– Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?

Fólk sem hangir í sínum eigin hugarheimi á vinstri akrein á tveggja akreina vegi. Skilið skírteininu takk.

– Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun:

Morgunstund gefur gull í mund.

– Hver er elsta minningin sem þú átt?

Ég man fyrst eftir mér í sundlauginni í Neðri-Dal í Biskupstungum. Mjög ljúf minning.

– Orð eða frasi sem þú notar of mikið:

Mér skilst að ég sé duglegur að segja „jæja ...“.

– Ef þú gætir farið til baka í tíma, hvert færirðu?

Ég myndi nota tækifærið og kíkja á börnin mín þegar þau voru ungabörn. 

– Hver væri titillinn á ævisögu þinni?

Það eru flestir grjóthörðu titlarnir fráteknir. Long Walk to Freedom (N. Mandela) og Granny Made Me an Anarchist (S. Christie). Ég myndi bara kalla mína: „Unnar vinnustundir“. 

– Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera?

Ég væri alveg til í að leysa minn mann Lewis Hamilton af í eins og einum kappakstri.

– Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð?

Ég myndi bjóða Boris Johnson og Donald Trump ásamt Einari Matthíasi vini mínum. Hann hefði ýmislegt að segja við þá félaga.

– Hvernig hefur þú verið að upplifa árið 2020 hingað til?

Þetta hefur að mörgu leyti verið sérkennilegt ár og krefjandi fyrir marga. Við komumst vonandi hratt og vel út úr erfiðu atvinnuástandi og efnahagsþrengingum ef við snúum öll bökum saman, horfum fram á veginn og nýtum saman þau tækifæri sem leynast víða.

– Er bjartsýni fyrir sumrinu?

Ég er bjartsýnn fyrir þessu sumri eins og öllum öðrum sem á undan hafa komið. Ég held að hver og einn geti gert þetta sumar að frábæru sumri.

– Hvað á að gera í sumar?

Við fjölskyldan munum ferðast innanlands. Ganga saman á hóla og hæðir, liggja í heitum pottum víða um land og vonandi hafa það gott.

– Hvert ferðu í sumarfrí?

Það er ekki ósennilegt að við förum eitthvað norður í land í sumar.

– Ef þú fengir gesti utan af landi sem hafa aldrei skoðað sig um á Suðurnesjum. Hvert myndir þú fara með þá fyrst og hvað myndir þú helst vilja sýna þeim?

Ég myndi fara með þá fyrst á Biryani Kebab í Reykjanesbæ því þeir eru ábyggilega svangir. Þaðan í hjólatúr út á Garðskaga, út á Hvalsnes og til baka. Svo á Rokksafnið í Reykjanesbæ. Síðan bíltúr út á Reykjanesskaga til að skoða frussandi hveri og gufustróka. Þaðan í Retreat Spa og Bláa lónið. Enda ágætan dag á Moss Restaurant.   

– Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu ...

... til Maldíveyja. Passa upp á að skila kveðju frá ykkur öllum.