Mannlíf

Hátíðartónleikar Hljómborðsdeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Ungur harmonikkuleikari úr Tónlistiarskóla Reykjanesbæjar fyrir nokkrum árum. Mynd úr safni Víkurfrétta
Mánudagur 25. apríl 2022 kl. 11:38

Hátíðartónleikar Hljómborðsdeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Þriðjudaginn 26. apríl heldur Hljómborðsdeild Tónlistarskóla Rekjanesbæjar Hátíðartónleika í Stapa, Hljómahöll.

Tónleikarnir hefjast kl.18 og gengið er inn um inngang Stapa.

Vakin er athygli á því að tónleikunum verður ekki streymt.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þetta er í fyrsta sinn sem deildin heldur tónleika með þessari yfirskrift en stefnt er á að þeir verði árlegur viðburður í tónleikahaldi skólans.

Fram koma liðlega 30 nemendur deildarinnar, þ.e. píanó- og harmonikunemendur, sem annars telur um 100 nemendur, og flytja úrval einleiks- og samleiksverka.

Allir eru velkomnir.