Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

H. Hawkline hitar upp fyrir Aldous Harding í Hljómahöll
H. Hawkline mun hita upp fyrir tónleika Aldous Harding í Hljómahöll
Mánudagur 13. júní 2022 kl. 21:30

H. Hawkline hitar upp fyrir Aldous Harding í Hljómahöll

Frábærir tónleikar í vændum í Hljómahöll!

H. Hawkline (Huw Evans) hitar upp fyrir Aldous Harding í Hljómahöll þann 16. ágúst næstkomandi. H. Hawkline er velskur tónlistar- og fjölmiðlamaður sem hóf sólóferil árið 2010 og hefur gefið út fjórar plötur frá þeim tíma. Hann hefur unnið með Cate Le Bon og Kevin Morby og síðustu árin með Aldous Harding en þau eru jafnframt par. Í fjölmiðlaheimum hefur hann m.a. unnið með samlanda sínum Huw Stephens sem er tónlistaráhugafólki hér á landi sem víðar að góðu kunnur.

Aldous Harding í Hljómahöll þann 16. ágúst næstkomandi

Það verður að teljast sannkallaður hvalreki fyrir tónlistarunnendur á Íslandi að Aldous Harding leggi lykkju á leið sína til að halda tónleika hér á landi. Hún gaf út sína fyrstu plötu Aldous Harding árið 2014 og hefur síðan þá vakið athygli fyrir lagasmíðar og ekki síður flutning.

Plöturnar Party (2017) og Designer (2019) hlutu einróma lof gagnrýnenda og tónlistarunnenda um allan heim. Þannig fékk hún fimm stjörnur af fimm mögulegum í tímaritinu Q og í The Independant fyrir Designer. Lagið Barrel af plötunni náði talsverðri spilun á Íslandi þegar það kom út í febrúar 2019. Dómar um nýju plötuna Warm Chris eru farnir að birtast og gaf Clash henni níu einkunn og Mojo og Uncut átta. Lögin Fewer og Lawn af Warm Chris hafa heyrst á öldum ljósvakans síðustu vikur.

Public deli
Public deli

Aldous Harding hefur unnið síðustu þrjár plötur (Party, Designer og Warm Chris) með tónlistarmanninum John Parish sem er m.a. þekktur fyrir samstarf sitt með PJ Harvey, Eels og Tracy Chapman.

Aldous Harding hefur hlotið góða dóma fyrir tónlist sína og mun eflaust gleðja tónleikagesti í Hljómahöll 16. ágúst næstkomandi.

Húsið opnar kl. 19 og tónleikar hefjast kl. 20.

Miðasala er í fullum gangi á tix.is og fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða.


Í spilurunum hér að neðan má sjá og heyra lögin Means That Much með H. Hawkline og The Barrel með Aldous Harding.