Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Gróðurkassar afhentir í Njarðvíkurskógum
Frá formlegri afhendingu gróðurkassanna.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 28. maí 2021 kl. 07:30

Gróðurkassar afhentir í Njarðvíkurskógum

Þann 20. maí afhenti umhverfissvið Reykjanesbæjar, Suðurnesjadeild Garðyrkjufélags Íslands til varðveislu og rekstrar þrjátíu gróðurkassa, sem hafa áður hafa verið staðsettir á þremur stöðum í bæjarfélaginu. Þeim hefur nú öllum verið komið á einn varanlegan stað, fjölskylduvænlegu útivistasvæði, sem hlotið hefur nafnið Njarðvíkurskógar.

Heitið Njarvíkurskógar höfðar til þess að í framtíðinni verði svæði þetta gróðri vaxið með trjám og runnum, þar sem bæjarbúar allir hafi lagt sitt að mörkum til að svæðið verði sem mest aðlaðandi til útivistar. Það sem þegar hefur verið gert af hálfu bæjarins ber merki um metnaðarfulla græna framtíðarsýn fyrir það fjölmenningarsamfélag sem við búum í. Á svæðinu er þegar til staðar grillaðstaða, þrautaleikjagarður, afgirt leiksvæði fyrir hunda og frisbígolfvöllur, svo nokkuð sé nefnt. Fjölfarnar gönguleiðir liggja um svæðið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það er heiður fyrir okkar litlu garðyrkjudeild að taka þátt mótun þessa svæðis með því að taka við þessum gróðurkössum sem hér hefur verið komið fyrir og verða kveikjan að því sem kalla mætti Grenndargarða Suðurnesja. Í þessum gjörningi felast óendanleg tækifæri. Hér geta bæjarbúar komið saman sem samfélag þar, sem margbreytileikinn nýtur sín, lært hver af öðrum, þroskað með sér hæfileika og notið þess að rækta eigin matjurtir. Aldrei bragðast grænmeti betur en það sem ræktað er með eigin höndum.  Börn sem borða sínar eigin ræktaðar radísur eða rófur fá yfir andlitið sérstakan ljóma. Kassarnir veglegu, sem komnir eru, svala grunnþörfum garðyrkju, það er afmarkað beð fullt af mold. Það er síðan hvers og eins að fá út úr slíku beði sem mestan ávöxt. Við kunnum að þurfa að bæta jarðveginn, byggja yfir beðin einfalda boga til að vernda plöntur þær sem settar verða niður með akrýldúkum og hækka þannig hitastig ræktunarsvæðisins. Þetta verður þróunarverkefni, eins og allt sem byrjað er á. Búið er að leiða vatn að svæðinu og til stendur að flytja þangað lítið hús, sem afdrep og til varðveislu garðáhalda. Það kemur í hlut deildarinnar að skipuleggja almanak ræktunarmannsins og eftir megni kenna viðeigandi handbrögð við ræktunina og umgengi á svæðinu. Hér myndast grundvöllur til samveru og kynna, þegar lagt er af stað. Það er í okkar höndum að móta svæðið til framtíðar. Við viljum sérstaklega ávarpa nýbúa í samfélagi okkar og fá þá með í þetta verkefni, njóta þeirra samveru og vona að þeir njóti okkar. Kassarnir eru tilbúnir til notkunnar og því um að gera að hefjast handa og leigja sér kassa, því þeir renna út. Grunngjald á hvern kassa er 5.000 krónur. Við hvetjum áhugasama að hafa tölvusamband við gjaldkera félagsins, Hannes Friðriksson, netfang [email protected], gefa upp kennitölu og reikningsnúmer í heimabanka, svo hægt sé að gjaldfæra leigugjaldið. Við vonum að sem flestir nýti sér þetta einstaka tækifæri og veri með frá byrjun til að byggja upp sameiginlega, grænt, fjölskylduvænt samfélag.

Fyrir hönd Suðurnesjadeildar Garðyrkjufélags Íslands,

Konráð Lúðvíksson,
formaður.