Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Gríssýning í Heiðarskóla til styrktar Krabbameinsfélagi Suðurnesja
Þriðjudagur 3. maí 2022 kl. 10:06

Gríssýning í Heiðarskóla til styrktar Krabbameinsfélagi Suðurnesja

Í kvöld, þriðjudaginn 3. maí, verður sérstök styrktarsýning á söngleiknum Grís sem unglingastig skólans setti á svið í mars. Sýningin er á sal skólans, hefst kl.20.00 og tekur tæpa klukkustund og kostar miðinn 1000 kr. Allur ágóði mun renna óskertur til Krabbameinsfélag Suðurnesja.

Áhugasamir eru eindregið hvattir til að nýta þetta síðasta tækifæri til að sjá söngleikinn, já eða að koma til að sjá hann aftur.

Public deli
Public deli