Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Fimmföld sýn í Stofunni í Duus Safnahúsum
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
laugardaginn 3. ágúst 2019 kl. 12:11

Fimmföld sýn í Stofunni í Duus Safnahúsum

Á vormánuðum var fimm listamönnum boðið að taka þátt í verkefni þar sem þeir unnu með upplifanir sínar af Suðurnesjunum. Áhersla var lögð á tvívíða miðla og verk á pappír.

Listamennirnir eru Anna Hallin, Leifur Ýmir Eyjólfsson, Helgi Þorgils, Olga Bergmann og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Þeim gafst kostur á að hafa vinnuaðstöðu í gamla samkomuhúsinu í Höfnum. Þau gengu mörg hver um landið í kring um Hafnir og söfnuðu litaprufum og sjónarhornum sem síðan runnu inn í verkin þeirra. Lágróður og vegghleðslur fundu sína leið í saumspori, ströndin og höfnin mótuðust á blaði, hólar og hæðir voru rispuð á koparplötur, hugleiðingar um náttúrufyrirbæri eins og flekaskilin og jafnvel flugumferðin varð að innblæstri. Ný sýn opnaðist á kunnugleg fyrirbæri sem listamennirnir gerðu að sínum með því að tvinna þau inn í verk sín.

Umsjónarmenn verkefnisins eru Hafnarbúarnir Valgerður Guðlaugsdóttir og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.

Sýningin mun standa frá 13. júlí til 18. ágúst í Stofunni Duus Safnahúsum. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fimmföld sýn í Duus Safnahúsum