Mannlíf

Eyrarrósin afhent í Suðurnesjabæ í dag
Þriðjudagur 12. febrúar 2019 kl. 09:15

Eyrarrósin afhent í Suðurnesjabæ í dag

Eyrarrósin verður afhent við hátíðlega athöfn í dag í Garði, Suðurnesjabæ, heimabæ alþjóðlegu listahátíðarinnar Ferskra Vinda, sem er handhafi Eyrarróasarinnar frá síðasta ári. Frú Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar mun afhenda verðlaunin.
 
Frá árinu 2005 hafa Byggðastofnun, Air Iceland Connect og Listahátíð í Reykjavík veitt viðurkenningu í nafni Eyrarrósarinnar til afburða menningarverkefna utan höfuðborgarsvæðisins. Eyrarrósinni er ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
 
Alls bárust 30 umsóknir um Eyrarrósina 2019 hvaðanæva af landinu en sex þeirra hafa nú verið valin á Eyrarrósarlistann og eiga þar með möguleika á að hljóta tilnefningu til sjálfra verðlaunanna í ár.  
 
Á Eyrarrósarlistanum 2019 birtast nöfn þeirra sex verkefna sem eiga möguleika á að hljóta verðlaunin í ár. Sjálfri Eyrarrósinni fylgir tveggja milljón króna verðlaunafé en að auki munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun.
 
Eyrarrósarlistinn 2019:
Act Alone leiklistar- og listahátíð, Suðureyri
Gamanmyndahátíð Flateyrar
List í ljósi, Seyðisfirði
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Norðanáttin (Nothern Wave), Snæfellsbæ
LungA skólinn, Seyðisfirði
Plan-B listahátíð, Borgarnesi
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024