Mannlíf

Blómamarkaður Lionsklúbbsins Æsu við Ytri-Njarðvíkurkirkju
Sunnudagur 31. maí 2020 kl. 07:00

Blómamarkaður Lionsklúbbsins Æsu við Ytri-Njarðvíkurkirkju

Blómamarkaður Lionsklúbbsins Æsu verður við Ytri-Njarðvíkurkirkju dagana 2. til 4. júní frá klukkan 16:00 til 19:00. Ágóði af blómasölunni rennur óskiptur til líknarmála. Heitt verður á könnunni alla daga.

Lionsklúbbburinn Æsa hefur styrkt ýmis málefni og fært gjafir á starfsárinu. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þetta er fimmta  árið sem Blómamarkaðurinn er í höndum Æsu. Lionsklúbburinn Æsa er kvennaklúbbur stofnaður 1997 og starfaði í tíu ár undir merkjum Lionessuklúbbs Njarðvíkur. Klúbburinn hefur á þessum árum styrkt líknar- og menningarmál, einkum hér í heimabyggð en einnig stutt við verkefni Lions á alþjóðavísu. 

Lions er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heims, stofnuð árið 1917. Félagafjöldi er um 1,4 milljónir og klúbbarnir 48.000 talsins í yfir 200 löndum. Lionsfélagarnir í Æsu eru í blómaskapi og verða með falleg og góð blóm á markaðinum. Það er mikill tilhlökkun hjá Æsukonum að taka á móti Suðurnesjamönnum sem eru í blómahugleiðingum með hlýju og kærleik.