Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Bjartmar og Bergrisarnir í Hljómahöll 1. desember
Mánudagur 28. nóvember 2022 kl. 14:51

Bjartmar og Bergrisarnir í Hljómahöll 1. desember

Bjartmar Guðlaugsson kemur fram á tónleikum í Stapa í Hljómahöll þann 1. desember ásamt Bergrisunum. Bjartmar þarf vart að kynna fyrir nokkrum tónlistarunnanda en lög hans og texta þekkja allir! Bjartmar hefur gefið út 16 sólóplötur á ferli sínum og er því af nægu að taka. 

„Hver veit nema að lög á borð fyrir Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki, Súrmjólk í hádeginu, Fimmtán ára á föstu, Járnkarlinn, Sumarliði er fullur, Þannig týnist tíminn, Negril eða hans nýjasta lag Af því bara fái að hljóma í Stapa þann 1. desember?,“ segir í tilkynningu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Bergrisarnir eru: Bjartmar Guðlaugsson, Júlíus Freyr Guðmundsson, Arnar Gíslason, Birkir Rafn Gíslason og Daði Birgisson.

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00. Miðasala er hafin á tix.is.