Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Baggalútur á trúnó seldist upp á átta mínútum
Þriðjudagur 19. mars 2019 kl. 11:52

Baggalútur á trúnó seldist upp á átta mínútum

- Blásið til aukatónleika

Sala á tónleika hljómsveitarinnar Baggalúts sem fara fram 5. apríl nk. í Hljómahöll hófst kl. 11 í gærmorgun og seldust miðarnir upp á aðeins átta mínútum. Vegna mikillar eftirspurnar hefur aukatónleikum verið bætt við samdægurs kl. 23. 
 
Aukatónleikarnir fara í sölu á morgun, miðvikudaginn 20. mars, stundvíslega kl.11 en notast verður við biðraðakerfi sem opnar kl. 10:30. Viðskiptavinum verður úthlutað stað í röðinni af handahófi þegar salan hefst kl.11 en miðakaupendur geta aðeins keypt að hámarki fjóra miða í einu.
 
Baggalútur á trúnó - Í tilefni af 5 ára afmæli Hljómahallar
 
Hljómsveitin Baggalútur verður á trúnó í Hljómahöll þann 5. apríl en þann dag verða fimm ár liðin frá opnun Hljómahallar. Baggalút þarf ekki að kynna fyrir neinum en óhætt er að lofa mikilli skemmtun með vönduðum hljóðfæraleik, segir í tilkynningu. 
 
Tónleikaröðin Trúnó hefur slegið í gegn í Hljómahöll undanfarin misseri. Hugmyndin á bakvið tónleikaröðina er sú að halda risastóra tónleika þar sem engu er til sparað en halda þá á minnsta sal Hljómahallar sem tekur aðeins 100 gesti í sæti. Þá eru listamennirnir sem koma fram á tónleikaröðinni yfirleitt vanari að spila fyrir töluvert stærri hóp áhorfenda. 
Public deli
Public deli