Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Allir á trúnó - ný revía hjá Leikfélaginu
Fimmtudagur 7. mars 2019 kl. 06:00

Allir á trúnó - ný revía hjá Leikfélaginu

-Leikfélag Keflavíkur frumsýnir nýja revíu

Föstudaginn 8. mars, verður frumsýnd ný revía hjá Leikfélagi Keflavíkur þar sem tekið er á mönnum og málefnum sem hafa vakið athygli á undanförnum mánuðum og jafnvel árum. Í ár eru 30 ár liðin frá fyrstu revíu félagsins sem sýnd var í Félagsbíói og sló aðsóknarmet félagsins á þeim tíma. Síðan þá hafa verið sýndar nokkrar revíur með góðri aðsókn bæjarbúa og þær hlotið mikið lof.

Public deli
Public deli

Revíur taka púlsinn á því sem hefur verið að gerast á Suðurnesjum og málefnum sem hafa verið umfjöllunarefni á kaffistofum vinnustaða, rifist hefur verið um, skrifað ofl. Pólitíukusar, menningarmál, fjölmenning, kísilver, Ljósanótt og svo mætti lengi telja eru meðal þess sem viðrað er í þessu verki.

Að þessu sinni er revían samin af  leikfélagsmeðlimum sem allir hafa reynslu af skrifum. Leikstjóri verksins er leikkonan Björk Jakobsdóttir en hún hefur áralanga reynslu af leikstjórn ýmissa leikverka og hefur bæði sem leikkona og leikstjóri góða innsýn í leikhúsvinnu bæði með áhugaleikhúsum og atvinnuleikhúsum. Björk ber Leikfélagi Keflavíkur góða sögu og segir að hér sé um að ræða frábæran leikhóp sem sýnir sitt besta í virkilega vel skrifuðu verki. Söngur, gleði og grín sem svo sannarlega kemur til með að kitla hláturtaugar gesta, kannski hneyksla einhverja en gleðja aðra. Allt er þetta gert með það að markmiði að skemmta leikhúsgestum.

Leikfélag Keflavíkur er eitt af öflugustu áhugaleikfélögum landsins og er þess skemmst að minnast að sýning félagsins Mistery boy var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins síðasta leikár og var sýnd fyrir fullu Þjóðleikhúsi við mikinn fögnuð. Höfundur þess verks var ungur áhugaleikari og tónlistarmaður, Smári Guðmundsson en þar sannaði leikfélagið enn og aftur hversu öflugt það er og að félagið er til í að fara óhefðbundnar leiðir í verkefnavali. Sú sýning sem sló öll aðsóknarmet er Dýrin í Hálsaskógi sem sýnd var haustið 2017 í leikstjórn Gunnars Helgasonar og enn eru leikarar að koma fram á hinum ýmsu skemmtunum með persónum úr dýrunum. Gríðarleg vinna liggur að baki svona uppsetningu og það er því frábær viðurkenning til allra þeirra sem að sýningunni koma ef fólk leggur leið sína í frumleikhúsið. Öflugt starf hjá öflugu Leikfélagi Keflavíkur.

Eins og fyrr segir verður frumsýning revíunnar föstudaginn 8. mars kl. 20.00 en allar nánari upplýsingar um sýningatíma og verð má finna á lk.is.

Sjáumst í Frumleikhúsinu!