Mannlíf

Að lifa og njóta augnabliksins
Miðvikudagur 22. júlí 2020 kl. 07:46

Að lifa og njóta augnabliksins

Á fallegu sumarkvöldi þegar sólin er enn hátt á lofti og sumarhitinn ásættanlegur, þá er tími til að njóta. Það gerðu þessir tveir ræðarar á bátum sínum á Garðhúsavíkinni við Garðskaga eitt mánudagskvöldið nýlega. Þeir voru bara tveir með sjálfum sér á tjarnsléttum sjónum þegar ljósmyndari Víkurfrétta rauf kyrrðina með flygildi sínu. Þeir veifuðu til myndavélarinnar á drónanum og settu svo hendur á árarnar og réru kajökum sínum lengra út á víkina.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024