Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

„Finnst skemmti­legast að keppa“
Sunnudagur 24. janúar 2021 kl. 08:37

„Finnst skemmti­legast að keppa“

– segir Snorri Rafn sem hefur unnið til fleiri en 100 verðlaunapen

Íþróttadrengurinn Snorri Rafn hefur samtals unnið meira en 100 verðlaunapeninga í fimleikum, golfi, skíðum og knattspyrnu en honum finnst einnig gaman að syngja og spila á gítar.

Snorri Rafn William Davíðsson á heima í Keflavík en hann er nýorðinn þrettán ára.  Hann hefur verið sérstaklega iðinn að taka þátt í ýmiskonar keppnum og er það eitt það skemmtilegasta sem hann gerir. Hann hefur nú þegar orðið Íslandsmeistari fjórum sinnum, annars vegar í fimleikum á bogahesti og stökki og hins vegar tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi með sveit Golfklúbbs Suðurnesja tólf ára og yngri.

Public deli
Public deli

Snorri Rafn hefur lagt mesta stund á fimleika en hann æfir fimleika fjórum sinnum í viku yfir vetrartímann með fimleikafélaginu Gerplu í Kópavogi en áður æfði hann með fimleikadeild Keflavíkur. Hver æfing er að minnsta kosti þrír tímar og því fara margir tímar í hverri viku í fimleika. Vegna Covid-19 hefur mikið verið um heimaæfingar á Zoom eða æfingaáætlun dagsins sett á netið og því hefur bílskúrnum verið breytt í smá fimleikasal þar sem hægt er að gera flest allar æfingarnar.

„Mér finnst alltaf mjög gaman á fimleikaæfingum og þá sérstaklega að læra nýja hluti. Við förum oft í litlar keppnir á æfingunum og það finnst mér skemmtilegustu æfingarnar,“ segir Snorri Rafn í viðtali.

Síðasta sumar fór Snorri Rafn oftar í golf en nokkru sinni áður og tók hann þátt í fjölmörgum golfmótum vítt og breytt um landið með góðum árangri. Systir hans, Lovísa Björk, og pabbi þeirra, Davíð Jónsson, kepptu þá oft saman og úr varð skemmtileg keppni. Þau urðu svo öll klúbbmeistarar í sínum flokki á meistaramótinu síðasta sumar. Snorri Rafn í unglingaflokki hjá Golfklúbbi Suðurnesja en Davíð og Lovísa Björk urðu klúbbmeistarar hjá Golfklúbbi Sandgerðis í karla- og kvennaflokki. 

„Við ferðuðumst mjög mikið síðasta sumar á hjólhýsinu okkar og tókum við þátt í mörgum golfmótum. Skemmtilegast fannst mér að keppa á Selfossi en þar spila ég alltaf mjög vel. Það var líka gaman að keppa með systur minni á Akranesi og í Vogunum en þá spiluðum við betri bolta og passaði spilamennska okkar mjög vel saman. Ég var svo að fá nýjar golfkylfur í afmælisgjöf þannig að ég hlakka mikið til þegar sumarið kemur og prófa að slá úti með nýju golfkylfunum. Siggi Palli, golfkennarinn minn, sagði að ég væri búinn að lengja mig mikið og það verður gaman að sjá það,“ segir Snorri Rafn.

Snorri Rafn er einnig skíðamaður en hefur lítið getað stundað þá íþrótt í vetur.

„Því miður þá gat ég mjög lítið stundað skíði síðasta vetur þar sem skíðasvæðunum var lokað mjög snemma vegna Covid. Við fórum samt á eitt skíðamót á Dalvík en þar er keppt á skíðum og í sundi. Það gekk bara mjög vel en eftir það var öllu lokað. Leiðinlegast fannst mér að Andrésar Andar leikunum skyldi vera aflýst en það er langskemmtilegasta skíðamótið og hef ég tekið þátt í þeim frá því ég var sex ára gamall.“ 

Það er von fjölskyldunnar að skíðasvæðin verði opin mikið lengur þennan veturinn en venjulega byrjar skíðatímabilið hjá Snorra Rafni ekki fyrr en eftir áramót og þá gefst meiri tími til að fara á skíðaæfingar.

Fyrir utan það að keppa í íþróttum þá finnst Snorra Rafni gaman að syngja og spila á gítar. 

„Á þessum tíma er ég venjulega mikið að spila og syngja á tónleikum í kirkjum eða eitthvað svoleiðis en það verður eitthvað öðruvísi í ár þar sem allir tónleikarnir fara fram á netinu,“ segir Snorri Rafn sem finnst það greinilega ekki eins skemmtilegt og spila fyrir framan áhorfendur. Síðasta vetur tók hann þátt í söngleiknum Fiðlarinn á þakinu í Hljómahöll og gæti hann alveg hugsað sér að verða leikari eða söngvari í framtíðinni. Það má annars vel segja að Snorra Rafni finnist gaman að öllu sem hann tekur sér fyrir hendur og ef það tengist keppni þá er það jafnvel enn skemmtilegra.