Íþróttir

Vil frekar að fólk tali um hversu gott golf ég spila heldur en aldurinn
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 29. maí 2020 kl. 07:37

Vil frekar að fólk tali um hversu gott golf ég spila heldur en aldurinn

„Þetta gekk alveg svakalega vel og fór langt fram úr mínum væntingum,“ segir Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja, en hann endaði jafn í þriðja sæti á fyrsta stigamóti Golfsambands Íslands á Garðavelli um síðustu helgi.

Guðmundur Rúnar hefur ekki verið duglegur að keppa á stigamótunum undanfarin ár en þó alltaf tekið þátt í Íslandsmóti í höggleik. Hann var þó með í fleiri mótum í fyrra og stefnir á að keppa á öllum mótunum í sumar. Guðmundur er tífaldur klúbbmeistari GS en hann á líka einn flottan titil sem er Stigameistari GSÍ en því náði hann árið 2001.

„Ég er búinn að vera að æfa á fullu í allan vetur. Eins fór ég í  góða æfingaferð með GS á Hellishóla í byrjun maí sem var snilld,“ segir Guðmundur Rúnar sem er 45 ára á árinu og hann var aldursforsetinn á mótinu í Skipaskaga en þar eru flestir keppendur á milli 20 og 30 ára.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Leiknar voru þrír hringir eða 54 holur á þremur dögum og voru aðstæður góðar fyrstu tvo dagana en hins vegar mun verri á lokadeginum, sérstaklega á fyrri helmingi hringsins, þegar rigndi duglega og eins var mikill vindur. Suðurnesjamaðurinn lét það ekki á sig fá enda alinn upp í Leirunni þar sem vindurinn er oft á hraðferð.

Guðmundur segist kunna vel við Garðavöll. „Mér gekk bara mjög vel að eiga við hann. Þau fáu slæmu högg sem ég sló missti ég á rétta staði þannig að ég var aldrei í vandræðum. Garðavöllur virðist henta mér vel og ég spila oftast vel þar.“

Er ekkert skrýtið að vera helmingi eldri en flestir þátttakendur?

Ja, stundum! Oftast er ég nær foreldrum þeirra í aldri. Eins er líka pínu spes að vera þrír saman í ráshópi og tveir yngstu ná mér ekki samanlagt í aldri,“ segir Guðmundur og hlær en vill ekki gera mikið úr aldrinum.

„Mér finnst þetta svona ótrúlega  gaman og spái lítið í þetta. Vil frekar að fólk tali um hversu gott golf ég spila heldur en aldurinn,“ segir Guðmundur Rúnar sem er spenntur fyrir næsta stigamóti sem verður á hans heimavelli í Leirunni.