Víðismenn með sigurleik
Víðismenn fóru með sigur af hólmi í viðureign sinni við Dalvík/Reyni í dag. Leikið var í Garði og úrslitin urðu 2-1.
Helgi Þór Jónsson skorðai bæði mörk Víðis, það fyrra á 6. mínútu og það síðara á 50. mínútu úr Víti. Gestirnir úr Eyjafirði minnkuðu muninn á 62. mínútu úr víti.
Þróttur úr Vogum var á Húsavíkurvelli þar sem heimamenn í Völsungi fóru með 3-1 sigur.