Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

  • Þróttarar ráðast í uppbyggingu íþróttamannvirkja
  • Þróttarar ráðast í uppbyggingu íþróttamannvirkja
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 1. apríl 2021 kl. 08:07

Þróttarar ráðast í uppbyggingu íþróttamannvirkja

Skóflustunga tekin í dag að nýju félagsheimili Þróttar og flóðlýstum gervigrasvelli

Ungir iðkendur Þróttar munu taka  skóflustungu að nýrri félagsaðstöðu og gervigrasvelli í fullri stærð á félagssvæði Þróttar í dag klukkan 11:00.
Félagsaðstaðan mun hýsa búningsklefa fyrir knattspyrnusvæði, aðstöðu fyrir vallargesti, skrifstofur og veislusali.

Þá mun nýr knattspyrnuvöllur, lagður gervigrasi og í fullri stærð, einnig rísa á svæði Þróttara. Gengið hefur verið frá samningi við Íslenska aðalverktaka hf. um byggingu hússins og knattspyrnuvallarins. Stefnt er að því að húsið verði tilbúið til notkunar í byrjun næsta árs en knattspyrnuvöllurinn strax í haust.

Á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga þann 7. október sl. var erindi Þróttar um bætta aðstöðu til knattspyrnuiðkunar tekið fyrir og sent til meðferðar við gerð fjárhagsáætlunar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Heildarkostnaður við þessa framkvæmd er áætlaður undir hálfum milljarði króna og hefur Sveitarfélagið Vogar fengið úthlutað styrk úr Mannvirkjasjóði KSÍ auk þess að Ríkissjóður mun kosta hluta framkvæmdanna sem lið í atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum í kjölfar þess aukna atvinnuleysis sem ríkir vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins.

Petra Ruth, formaður Þróttar, fer yfir ársskýrsluna á síðasta aðalfundi félagsins.

Í samtali við Víkurfréttir sagði Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður félagsins, að þetta væru miklar gleðifréttir. „Það er mikill metnaður í Þrótturum og frábært að finna að Sveitarfélagið Vogar vill vera okkur samstíga á þeirri vegferð sem Þróttur er á,“ sagði Petra jafnframt.

Þróttur býður öllum Þrótturum og öðrum bæjarbúum að vera viðstaddir athöfnina sem hefst stundvíslega kl. 11:00. Búið er að útbúa fimmtán sóttvarnarhólf við knattspyrnusvæðið og eru allir gestir beðnir að halda sig í sínum hólfum.  

Að athöfn lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í öllum sóttvarnarhólfum. 

Gestir frá UMFÍ og KSÍ verða á svæðinu.

Íþróttasvæðið verður allt hið glæsilegasta og mikil prýði á bæjarstæði Voga.