Íþróttir

Sveindís skoraði í stórsigri gegn Belgum
Sveindís, Katla og Íris ásamt liðsfélögum sínum úr Keflavík.
Þriðjudagur 9. október 2018 kl. 09:15

Sveindís skoraði í stórsigri gegn Belgum

Keflvíkingarnir Sveindís Jane Jónsdóttir, Katla María og Íris Una Þórðardætur eru hluti af U19 landsliði Íslands í knattspyrnu sem gerði sér lítið fyrir og lagði Belgíu 5-1 í gær. Íslendingar enduðu með fullt hús stiga í sínum riðli og var um slag efstu liðanna að ræða. Sveindís Jane skoraði eitt af mörkum Íslands. Liðið er nú komið áfram í milliriðla.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024