Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Sindri – réttur maður á réttum stað
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 20. júlí 2020 kl. 10:24

Sindri – réttur maður á réttum stað

Sýndi stórleik og var verðskuldað valinn maður leiksins í sigrinum gegn Þór

Það var ekki úr vegi að heyra í Sindra Kristni Ólafssyni, manni leiksins, eftir sigurinn á Þór en síðustu leikir Keflavíkurliðsins hafa vægast sagt verið ótrúlegir.

– Jæja Sindri, nú eru tveir síðustu leikir heldur betur búnir að vera svakalegir og rosalega ólíkir.

Já, mjög ólíkir. Þeir eiga ekkert sameiginlegt.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

– Þú áttir flottan leik síðast og valinn maður leiksins. Ertu ekki sáttur við þína frammistöðu?

Jú, þrususáttur. Gott auðvitað að sækja þessi þrjú stig miðað við út í hvað málin voru komnir.

– Stórmunur á liðinu milli heimaleikja, hálfdaufir á móti Leikni en komið svo öskrandi í þennan leik. Hvað gerðist?

Já, við lentum í ákveðnu stemmningsleysi á móti Leikni þótt við værum yfir, þeir eru með sterkt lið og gengu bara á lagið. Við söknuðum kannski leiðtogans Fransa inn á miðjunni í þeim leik og áttum í rauninni ekkert meira skilið, þótt við hefðum átt að nýta færi sem við fengum. Þetta var kannski ágætis áminning um að við löbbum ekkert í gegnum þetta Íslandsmót, það sést á úrslitum í deildinni – allir eru að vinna alla. Alla vega þessi topp átta lið. Það má líka hrósa okkur fyrir Grindavíkurleikinn þar sem við lentum tveimur mörkum undir, það væri auðvelt að brotna við mótlætið en við rifum okkur upp og sýndum hvers megnugir við erum, jöfnuðum og gáfumst aldrei upp. Mjög mikill karakter og hann endurspeglaðist í Þórsleiknum þar sem við lendum tveimur mönnum undir en klárum leikinn og löndum þessum stigum.

– Þetta eru tvö ólík lið sem mæta á völlinn í síðustu tveimur leikjum, varnarlega séð. Þurfti Eysteinn ekki að byrsta sig eftir Grindavíkurleikinn?

Það var enginn að missa sig yfir þessu í hálfleik, við tókum mjög fagmannlega á þessu. Við töluðum um það eftir leikinn að við hefðum áhyggjur af varnarleiknum. Þetta væri ekki nógu gott, þó við höfum fengið á okkur fjögur mörk þá fengum við fjórtán skot á rammann og það er bara of mikið. Við vorum ekki að leika nógu góðan varnarleik, vorum að gera kjánaleg mistök og það sást besýnilega í Þórsleiknum að við vorum búnir að fara vel yfir þetta. Þetta gekk töluvert betur, menn voru að fara í einvígin og vinna seinni boltann – og það munar helling um það. Það er málið.

– Þú ert í toppformi núna, er það ekki?

Jú, mér líður mjög vel og er alltaf að reyna að bæta mig. Ég vil ennþá ná langt og þó maður sé orðinn þetta gamall [23 ára] þá vill maður ennþá getað afrekað eitthvað í þessu (þarna benti blaðamaður Sindra á að Dino Zoff hafi verið fertugur þegar hann varð heimsmeistari með Ítölum, 23 ára væri enginn aldur fyrir markmann).

Maður segir bara svona segir Sindri og hlær. Ég stefni lengra en Keflavík er frábær vettvangur fyrir mig að vera á núna og ég er stoltur að vera að taka þátt í þessu enn eitt árið. Við höfum ekkert falið það í undirbúningnum að við erum eitt af þessum liðum sem stefnir á annað af þessum sætum í efstu deild. Við megum ekki misstíga okkur oft, ég meina við munum tapa stigum en þá verðum við að koma strax til baka eins og við gerðum núna.

– Þið mætið Þrótti í næsta leik, það er væntanlega leikur sem má ekki vanmeta.

Nei, lúmskerfiður leikur þar sem þeir eru búnir að tapa fyrstu fimm leikjum sínum og eru væntanlega dýrvitlausir að sækja einhver stig. Við verðum að fara af fullum huga í þann leik annars fer illa, þeir eru með fínan mannskap og við töpuðum fyrir þeim heima í fyrra. Þetta er skyldusigur en við megum ekki fela okkur á bak við það, við verðum að sækja þessi stig.

Að lokum vil ég fá að hrósa stuðningsmönnum okkar, ég vil meina að við eigum bestu stuðningsmenn deildarinnar. Maður fann orkuna eftir Grindavíkurleikinn, hvað hún var frábær og hvað allir flykktust á bak við liðið. Frábært andrúmsloft og maður verður að hrósa öllu þessu liði sem nennir að mæta og horfa á okkur sama hvað.

Viðtalið birtist í 28. tölublaði Víkurfrétta 2020.