Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Ragnar Þór og Rafal Stefán áfram í Vogum
Úr leik Þróttar gegn Njarðvík. Mynd úr safni Víkurfrétta.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 11. nóvember 2020 kl. 09:21

Ragnar Þór og Rafal Stefán áfram í Vogum

Knattspyrnudeild Þróttar Vogum hefur endursamið við þá Rafal Stefán Daníelsson og Ragnar Þór Gunnarsson.

Rafal, sem er nítján ára markvörður, var á láni frá Fram í sumar og stóð sig frábærlega með Þrótturum. Hann hóf sinn meistaraflokksferil með Fram og hef­ur verið val­inn í úr­taks­hópa fyr­ir yngri landslið Íslands og auk þess farið utan til reynslu og æf­inga hjá ung­lingaliðum ensku stórliðanna Li­verpool og Evert­on.

Public deli
Public deli

Ragnar Þór mun leika sitt fjórða tímabil með Þrótti í 2. deild á næsta ári. Ragnar hefur leikið fyrir Tindastól í 2. deildinni en hann á einnig leiki að baki í Pepsi-deildinni með Val og í 1. deildinni með Selfossi.