Íþróttir

Nýr útlendingur í Ljónagryfjuna
Fimmtudagur 4. júní 2020 kl. 12:30

Nýr útlendingur í Ljónagryfjuna

Körfuknattleiksdeild UMFN hefur samið við Rodney Glasgow þess efnis að hann leiki með meistaraflokki karla á komandi keppnistímabili. Rodney er 180 cm bakvörður, fæddur 1992.  Hann er fæddur í Bandaríkjunum en er með breskt vegabréf.

Rodney útskrifaðist úr VMI háskólanum árið 2014 en þar var hann með 18,8 stig, 4,1 frákast og 5,8 stoðsendingar á leik. Með VMI háskólanum lék einmitt annar fyrrum leikmaður Njarðvíkur, Travis Holmes.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Eftir útskrift úr háskóla hefur Rodney leikið í Sviss, Belgíu, Slóvakíu (tvö ár) og svo lék hann með Newcastle í ensku deildinni sl vetur og varð með þeim enskur bikarmeistari.

Rodney verður mættur í slaginn seinni part ágústmánaðar, segir í frétt frá UMFN.