Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Nettó mótið fer ekki fram í ár
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 13. mars 2020 kl. 09:28

Nettó mótið fer ekki fram í ár

Mótshaldarar Nettó mótsins í körfubolta verður ekki haldið í ár en því var frestað um síðustu helgi. Von var á 1300 ungmennum til keppni. Í tilynningu frá mótshöldurum kemur fram að niðurstaðan er sú að halda ekki mótið í ár.

Í tilkynningunni segir: „Líkt og öllum er ljóst var Nettómótinu 7.-8. mars 2020 „frestað um ótilgreindan tíma“ skömmu eftir að neyðarstigi Almannavarna hafði verið lýst yfir vegna COVID-19. Þetta reyndist óhjákvæmileg ákvörðun eftir að afboðanir í stórum stíl tóku að berast í kjölfarið.

Public deli
Public deli

Þessi ákvörðun var sú erfiðasta sem mótshaldarar hafa nokkurn tíma staðið frammi fyrir og erfiðast af öllu var þó að bregðast þeim fjölmörgu börnum sem var búið að hlakka lengi til mótsins.

Unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur hafa nú fundað sérstaklega um framhaldið og hvaða möguleikar séu í stöðunni. Niðurstaðan er sú að við sjáum ekki raunhæfan möguleika á því að setja mótið aftur á dagskrá á þessu ári.

Næsta Nettómót, það þrítugasta í röðinni, verður því haldið 6.-7. mars 2021. Þar mun öllu verða tjaldað til svo upplifun gesta verði sem best. Einnig hefur verið ákveðið að árgangi 2009, sem átti að vera elsti árangur á þessu móti, verði boðið að vera með á næsta móti.