Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Minningarmót Ragnars Margeirssonar
Fimmtudagur 13. febrúar 2020 kl. 10:49

Minningarmót Ragnars Margeirssonar

Hið árlega minningarmót um Keflvíkinginn Ragnar Margeirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram, verður haldið í Reykjaneshöll laugardaginn 29. febrúar. Mótið er hefbundið knattspyrnumót eldri drengja með 6 í liði á kvart velli. Skipt verður í riðla eftir aldri þátttökuliða, n.t.t. 35 ára+ og 50 ára+.

Frá því að vinir Ragga Margeirs hófu að minnast hans sem félaga, hafa margir aðrir góðir vinir og fyrrverandi knattspyrnumenn horfið á braut. Á síðastliðnu ári kvöddum við vin okkar Grétar Einarsson. Eins og hefð er fyrir þá munum við nota þenna viðburð til að safna fé og að þessu sinni láta afraksturinn ganga til fjölgóðskyldu Grétars.

Public deli
Public deli

Þetta verður í fimmtánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragga Margeirs og annara fyrrverandi knattspyrnusnillinga sem látist hafa langt fyrir aldur fram.

Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni á laugardaginn og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga saman góða stund. Mótið hefst um kl. 16:00 og lýkur um kl. 18:00.

- Leikið verður á 4 litlum völlum (50 x 32).
- Leikmannafjöldi: 6 í liði (5 útileikmenn og markvörður)
- Aldurstakmark er 35 ár
- Hámarksfjöldi liða í mótið eru 16 lið

- Þátttökugjald er að lágmarki 20.000 kr. á lið
- Staðfestingargjald (5000 kr. - sem dregst frá þátttökugjaldi) skal greitt eigi síðar en 21. febrúar
- Þátttökugjald leggist inn á reikning: 121 - 05 - 10026, kt. 180161-4229
- Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar

Þeir sem vilja láta fé af hendi rakna af þessu tilefni og styrkja málefnið, geta gert það með því að leggja inná reikning nr. 121-05-10026, kt. 180161-4229.
Þátttökutilkynningar sendist á [email protected]

Með fótboltakveðju.
Vinir Ragga Margeirs