Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Markvörðurinn myndar í Úlfa-borginni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 22. janúar 2022 kl. 06:13

Markvörðurinn myndar í Úlfa-borginni

Pálmi Rafn Arinbjörnsson mundar Canon myndavélina á milli æfinga og leikja í í Englandi.

„Ég hef haft mikinn áhuga á myndavélum frá því að ég var tólf ára. Þá fékk ég GoPro myndavél í gjöf frá mömmu og pabba og síðan keypti ég mér glænýja Canon myndavél fyrir allan fermingarpeninginn minn,“ segir Pálmi Rafn Arinbjörnsson, einn yngsti atvinnumaður okkar í knattspyrnu en hann hefur leikið í markinu hjá yngri liðum úrvalsdeildarliðsins Wolves, eða Úlfanna í Englandi.

Pálmi fór utan þegar hann var að verða sextán ára og er búinn að vera í tvö ár og gengur vel. Úlfarnir sáu mikla möguleika í markverðinum úr Njarðvík og fyrst um sinn fór móðir hans með honum til ensku borgarinnar. Nú er okkar maður einn og stundar nám samhliða fótboltanum „Þetta er svokallað B-tech nám, ekki ólíkt afreksbraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Öll lið í efstu deild í Englandi skaffa yngri leikmönnum sínum þetta nám.  

Public deli
Public deli

Myndavél á milli æfinga

Pálmi Rafn stofnaði nýlega síðu á YouTube þar sem hann hefur nú sett inn nokkur myndbönd. 

„Ég var alltaf að taka myndbönd eða myndir hér og þar en hætti því þegar ég fór út til Englands, missti áhugann dálítið, held ég hafi verið hræddur um álit annarra – en seinustu mánuði hefur mér verið að leiðast mikið á daginn þar sem ég bý einn og ekki er alltaf hægt að hafa einhvern hjá sér útaf Covid. Ég var kominn í óheilbrigða rútínu að koma beint heim eftir æfingu og sitja í tölvunni þangað til ég fór að fara sofa, þannig ég ákvað að kaupa mér flotta myndavél til að nýta dagana mína betur. Ég sé alveg fyrir mér að þetta er eitthvað sem mig langar að vinna við þegar fótboltinn er búinn. Stefnan var alltaf að mennta mig á þessu sviði áður en mér var boðið út í fótboltann.“

Fótbolti alla daga 

Pálmi Rafn hefur undanfarið leikið með einu af unglingaliðum Wolves og gengið vel. „Það gengur bara vel í fótboltanum. Við komumst áfram í bikarkeppninni rétt fyrir jól á móti Salford City. Þá lék ég í fyrsta sinn á Molineux leikvanginum. Núna þarf ég bara að ná að spila eins marga leiki og ég get til þess að undirbúa mig fyrir milliriðil á undankeppni EM með U19 landsliðinu – og vonandi vinna riðilinn og komast áfram á EM.“

Hefurðu sótt leiki hjá úrvalsdeildarliði Wolves í ensku deildinni?

„Ég hef ekki verið svo duglegur að mæta á leiki hjá aðalliðinu. Aðallega út af Covid, fullur leikvangur og enginn með grímur. Ég hef ekki viljað eiga á hættu að þurfa að fórna tíu dögum frá bolta til að horfa á leik hjá þeim – en vonandi lagast ástandið og ég get byrjað að mæta á alla heimaleiki,“ segir Pálmi Rafn.