Íþróttir

Lengjudeild karla: Erfið byrjun hjá Njarðvík - Fjórða jafnteflið hjá UMFG
Njarðvíkingar hafa ekki fagnað oft á nýbyrjuðu keppnistímabili. VF/hilmarbragi.
Sunnudagur 24. maí 2026 kl. 12:28

Lengjudeild karla: Erfið byrjun hjá Njarðvík - Fjórða jafnteflið hjá UMFG

Njarðvíkingar hafa byrjað brösuglega í Lengjudeild karla í knattspyrnu en þeir gerðu markalaust jafntefli gegn Ægi, neðsta liði deildarinnar á JBÓ vellinum í Njarðvík í gær. Grindvíkingar gerðu sömuleiðis 0:0 jafntefli á föstudagskvöld gegn Leikni úr Reykjavík.

Heimamönnum í Njarðvík gekk illa að búa sér til marktækifæri en gerðu það þó í blálokin þegar þeir áttu dauðfæri og skot í stöng en inn vildi boltinn ekki og niðurstaðan 0:0, vonbrigði fyrir heimamenn sem eru í þriðja neðsta sæti deildarinnar með fimm stig.

Grindvíkingar eru í betri málum og eru í 5. sæti deildarinnar, þó aðeins tveimur stigum meira en UMFN, með 7 stig. UMFG er eina taplausa liðið í deildinni en hafa gert fjögur jafntefli og því er stigasöfnunin ekki í takti við þá staðreynd.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Staðan.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar