Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Kristín fyrsta konan sem formaður Njarðvíkurkörfunnar
Kristín Örlygsdóttir, nýr formaður körfuknattleiksdeildarinnar.
Þriðjudagur 30. apríl 2019 kl. 11:38

Kristín fyrsta konan sem formaður Njarðvíkurkörfunnar

Aukaaðalfundur Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur fór fram í Ljónagryfjunni í gærkvöldi þar sem Kristín Örlygsdóttir tók við kefli formanns af Friðriki Ragnarssyni. Ný stjórn var kjörin fyrir starfsárið 2019-2020 og verður Kristín fyrsta konan í sögu deildarinnar til þess að gegna formannsembættinu.

Ný stjórn mun á næstunni skipta með sér verkum en þau sem gengu úr stjórn voru þau Friðrik Pétur Ragnarsson fráfarandi formaður, Páll Kristinsson fráfarandi varaformaður, Jakob Hermannsson, Róbert Þór Guðnason og Berglind Kristjánsdóttir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ný stjórn körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur:

Formaður: Kristín Örlygsdóttir

Meðstjórnendur: Brenton Birmingham, Jón Björn Ólafsson, Vala Rún Vilhjálmsdóttir, Agnar Mar Gunnarsson, Sigrún Ragnarsdóttir, Emma Hanna Einarsdóttir

Varastjórn: Guðrún Hildur Jóhannsdóttir, Geirný Geirsdóttir og Ásgeir Guðbjartsson.