Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Keflavík semur við keflvíska bræður
Mánudagur 4. febrúar 2019 kl. 09:29

Keflavík semur við keflvíska bræður

Keflavíkur hefur gert þriggja ára samning við bræðurna Anton Frey Hauks Guðlaugsson og Gunnólf Björgvin Guðlaugsson.
 
Anton Freyr hefur undanfarin ár leikið með meistaraflokki Keflavíkur.Hann er 22 ára varnarmaður og hefur leikið 57 meistaraflokksleiki með Keflavík og Njarðvík, þar sem hann lék eitt tímabil sem lánsmaður.
 
Í sumar spilaði Anton Freyr 14 leiki í Pepsi deildinni. Anton á að baki 16 landsleiki með U17 og U19 ára landsliðum Íslands.
 
Gunnólfur Björgvin er fæddur 2001 og verður því 18 ára á árinu. Gunnó eins og hann er jafnan kallaður er duglegur og hraður framherji sem látið hefur taka vel eftir sér með góðri spilamennsku í æfingaleikjum með meistaraflokki og leikjum með 2. flokki nú í haust, segir á heimasíðu Keflavíkur.
Public deli
Public deli