Íþróttir

Jón Axel með 21 stig í tapleik
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 9. nóvember 2020 kl. 12:05

Jón Axel með 21 stig í tapleik

Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson hefur byrjað vel með Fraport Skyliners í haustleikjunum en hann skoraði 21 stig í leik gegn Alba Berlín í gær. Jón Axel tók líka tvö fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Það dugði þó ekki til sigurs því Alba Berlín vann nokkuð öruggan sigur 79:66. Þetta var fysti leikur beggja liða í deildinni í Þýskalandi en átján lið leika í henni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024