Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Íþróttamaður ársins og hvatningarverðlaun
Mánudagur 5. desember 2022 kl. 15:06

Íþróttamaður ársins og hvatningarverðlaun

Sveitarfélagið Vogar hefur óskað eftir tilnefningum á íþróttamanni ársins fyrir árið 2022. Íþróttamaður ársins verður að vera búsettur í Vogum eða keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera orðnir 16 ára eða eldri. Heimilt er að nefna ungling 14-16 ára sem keppir í flokki fullorðinna og hefur náð það góðum árangri að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.

Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu farandbikar til eins árs og bikar til eignar. Val á íþróttamanni ársins verður tilkynnt sunnudaginn 8. janúar 2023 við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal.

Hvatningarverðlaun sveitarfélagsins verða einnig veitt við sama tækifæri. Öllum íþróttafélögum og einstaklingum í Vogum er heimilt að tilnefna til hvatningaverðlauna. Verðlaunin hlýtur einstaklingur eða einstaklingar sem er framúrskarandi í ástundun, áhugasemi, hegðun innan vallar sem utan og er góður félagi og fyrirmynd annarra barna og unglinga.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á [email protected] eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu, stílað á íþrótta- og tómstundafulltrúa, fyrir 10. desember.