Íþróttir

Hermann verður áfram með Þrótt Vogum
Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar, Hermann Hreiðarsson og Petra R. Rúnarsdóttir, formaður Þróttar.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 19. október 2020 kl. 09:41

Hermann verður áfram með Þrótt Vogum

Frágengið að Hermann Hreiðarsson verður áfram við stjórnvölinn hjá Þrótti Vogum 2021.

Hermann Hreiðarsson verður áfram þjálfari Þróttar Vogum í knattspyrnu á næstu leiktíð. Hermann tók við þjálfun Þróttar í sumar og fyrir lokaumferðirnar, er Þróttur Vogum í þriðja sæti 2. deildar.

Þróttur hefur unnið 11 af 16 deildarleikjum undir hans stjórn, tapað aðeins 2 leikjum og eru í harðri toppbaráttu þegar tvær umferðir eru eftir af Íslandsmótinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Ég er ánægður í dag“, sagði Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar Vogum. „Hermann er metnaðarfullur og faglegur í allri sinni vinnu og viðhorfi til félagsins. Það ríkir mikil ánægja með hans störf meðal leikmanna, stjórnarliða sem og allra Vogabúa. Þrátt fyrir mikla óvissu með mótamálin þá erum við staðráðin að halda áfram á sömu braut hver svo sem ákvörðun KSÍ verður með framhaldið," sagði Marteinn að lokum.

„Það tókst að kveikja vel í þessu í sumar, það er frábært að fá að starfa með öllu þessu fólki sem brennur af ástríðu fyrir félagið og samfélagið. Þrátt fyrir að tveir leikir séu eftir og mikil óvissa með framhaldið þá er árangurinn til þessa frábær, ég á ekki von á öðru en með stuðningi bæjarbúa og annara þá höldum við áfram þeirri vinnu á næsta ári," sagði Hermann Hreiðarsson.