Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Heiðarskóli í 2. sæti í Skólahreysti
Stefán Jón Friðriksson á fullu í hraðaþrautinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 31. maí 2020 kl. 10:36

Heiðarskóli í 2. sæti í Skólahreysti

Heiðarskóli varð í 2. sæti í Skólahreysti en úrslitakeppnin fór fram í gær í Laugardalshöll. Lindaskóli sigraði með 43 stig en Heiðarskóli endaði með 37 stig.

Silfurlið Heiðarskóla skipuðu Klara Lind Þórarinsdóttir, Stefán Jón Friðriksson (hraðaþraut), Logi Þór Ágústsson (upphífingar og dýfur) og Emma Jónsdóttir (armbeygjur og hreystigreip).

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Aðrir skólar er kepptu í úrslitum í ár voru Lundarskóli, Flóaskóli, Varmahlíðarskóli og grunnskólar Hellu og Húnþings vestra.

Íslandsmet Hjálmars Óla Jóhannessonar úr Egillsstaðaskóla frá 2016, 61 upphífing,  var slegið af Ara Tómasi Hjálmarssyni sem gerði 67 upphífingar.

Selma Bjarkadóttir úr Lindaskóla gerði flestar ambeygjur, 54 talsins. Systir Selmu, Sara Bjarkadóttir keppti í hraðaþraut ásamt Lúkasi Magna Magnasyni og fóru þau brautina fyrir Lindaskóla á besta tíma kvöldsins, 2:07 mínútum. Erlín Katla Hansdóttir, Flóaskóla, hékk lengst í hreystigreipinni eða í 8.52 mínútur. Goði Gnýr Guðjósson úr grunnskólanum á Hellu bar sigur úr býtum í dýfum og tók samtals 59 dýfur.

Þrjú efstu liðin í Skólahreysti 2020. Að neðan er lið Heiðarskóli. Mynd/mbl.is