Íþróttir

Hefur rosalega gaman af því að baka
Keflvíski knattspyrnumaðurinn Elías Már Ómarsson leikur með Nimes Olympique í Frakklandi. Myndir: Facebook
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 22. desember 2021 kl. 12:37

Hefur rosalega gaman af því að baka

Fólki finnst erfitt að finna gjafir handa honum en sjálfum finnst honum sérstaklega gaman að fylgjast með sonum sínum upplifa jólin og jólaundirbúninginn. Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Elíasi Má og fjölskyldu en þau fluttu frá Hollandi til Frakklands í sumar.

Hvernig hagar þú jólagjafainnkaupum?

Ég bara fékk fjölskyldumeðlimi til að fara í verslanir fyrir mig og kaupa það sem ég hafði valið af netinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hvað með jólaskreytingar, eru þær fyrr í ár?

Bara eins og vanalega þá fóru þær upp 1. desember.

Skreytir þú heimilið mikið?

Nei, nei, ekkert rosalega en ég skreyti alveg eitthvað. Það er sérstaklega gert fyrir börnin, þeim finnst gaman að sjá jólaljósin.

Bakarðu fyrir jólin, áttu þér uppáhaldssmáköku?

Ég var nú ekkert mikið í því í ár en ég hef samt rosalega gaman að því að baka og ég hef alltaf haldið mikið upp á Daim-kökurnar.

Eru fastar jólahefðir hjá þér?

Þegar ég bjó á Íslandi var yfirleitt svipaður undirbúningur og ákveðnar hefðir en eftir að ég flutti út þá er erfitt að halda í hefðirnar þar sem ég er í minna fríi en áður og fer ekkert heim til Íslands.

Hvernig er aðventan – hefðir þar?

Nei, ég get ekki sagt það.

Áttu skemmtilega jólaminningu?

Mér dettur fátt í hug. Ég á enga eina skemmtilega jólaminningu sem stendur upp úr. Eina er kannski það að þar sem ég kem minna heim núna og er ekkert yfir jólin þá saknar maður smá gömlu jóladaganna heima með fjölskyldunni.

Hefurðu sótt messu um jólahátíðirnar í gegnum tíðina?

Nei, það hef ég ekki gert.

Eftirminnilegasta jólagjöfin?

Ég veit það eiginlega ekki, hef fengið flottar gjafir í gegnum árin en engin sem virkilega stendur upp úr svo ég muni í augnablikinu.

Er eitthvað sérstakt sem þig langar að fá í jólagjöf? 

Nei, það finnst öllum voða erfitt að gefa mér gjafir þar sem ég eiginlega á allt sem mig langar í. Ég er bara ánægður með allt og ekkert, er spenntari fyrir því að sjá strákana mína tvo opna sínar gjafir.

Hvað verður í jólamatinn hjá þér á aðfangadagskvöld? 

Það er yfirleitt hamborgarhryggur og allskonar meðlæti með því.

Hvernig var árið 2021 hjá þér og þinni fjölskyldu? Hvert var farið í sumarleyfi? 

Það var bara rosa fínt. Við fórum ekkert í frí en fluttum frá Hollandi til Frakklands í sumar og höfum bara verið að koma okkur  fyrir. Við eyddum sumrinu mikið úti þar sem veðrið var gott og vorum mikið að fara í leikgarða og þess háttar fyrir strákana svo þeir fengju útrás yfir daginn.

Hvernig var árið í fótboltanum?

Það var þokkalegt, ég spilaði vel og skoraði mikið – en ég er bara ánægður að vera loksins komin burt frá Hollandi. Ég var ekki að fíla mig í liðinu og gæðin þar voru hræðileg.

Eftir að ég kom til Frakklands hef ég verið að koma mér meira og meira inn í hlutina hérna. Það talar náttúrlega nánast engin ensku þannig ég þarf bara að fara í frönskukennslu svo ég skilji þetta fólk. Ég lenti í smá meiðslum, meiddist smá í læri, og missti af einhverjum fjórum leikjum þannig það hefur tekið mig aðeins lengri tíma en ég vonaðist til að aðlagast fótboltanum hérna – en það fer að koma að því að ég aðlagist 100%.