Íþróttir

Grindvíkingar semja við markmann
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 12. nóvember 2020 kl. 08:11

Grindvíkingar semja við markmann

Á vef Grindavíkur segir að markvörðurinn Aron Dagur Birnuson sé genginn til liðs við Grindavík og hefur skrifað undir samning við félagið til næstu tveggja ára. Aron Dagur er 21 árs og kemur frá KA þar sem hann hefur leikið upp alla yngri flokka.

Aron Dagur hefur leikið 46 leiki í deild og bikar á ferli sínum með KA og á láni hjá Völsungi. Hann hefur verið einn af efnilegustu markvörðum landsins undanfarin ár og á að baki fimmtán leiki með yngri landsliðum Íslands.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Það er mjög góð tilfinning að hafa skrifað undir samning hjá Grindavík,“ segir Aron Dagur. „Fjölskyldan mín býr hér í Grindavík og hér er mjög flott lið sem ég hef fylgst með lengi. Grindavík er flottur klúbbur og ég er spenntur að vera kominn hingað. Mínar væntingar eru að spila í efstu deild með Grindavík að ári. Aðstaðan hér er frábær og miklu flottari en ég bjóst við.“

Það er skemmtileg staðreynd að öll þrjú systkini Arons leika einnig sem markmenn í fótbolta. Anton Helgi leikur með GG og á að baki nokkra leiki í marki með Grindavík. Arnar Eyfjörð varð Íslandsmeistari með fimmta flokki stráka í sumar og Sara Dögg leikur í marki með fimmta flokki stelpna. Ótrúleg markmannsfjölskylda. Það má því með sanni segja að Aron Dagur hafi sterka tengingu til Grindavíkur.

Knattspyrnudeild Grindavíkur lýsir yfir mikilli ánægju með að Aron Dagur sé genginn til liðs við félagið býður hann hjartanlega velkominn til Grindavíkur.

Grindavík gerði skemmtilegt kynningarmyndband fyrir nýjan leikmann liðsins sem sjá má í spilaranum hér að neðan.