HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Íþróttir

Grindvíkingar semja við leikmenn og fá liðsstyrk frá KA
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 31. október 2020 kl. 07:54

Grindvíkingar semja við leikmenn og fá liðsstyrk frá KA

Knattspyrnumaðurinn Freyr Jónsson er genginn til liðs við Grindavík en hann er uppalinn hjá KA á Akureyri. Freyr er 19 ára gamall og kemur frá Akureyri. Hann hefur leikið með KA upp yngri flokka og er miðjumaður að upplagi.

Freyr er fluttur á höfuðborgarsvæðið, hefur æft með Grindavík síðustu vikur og staðið sig vel. Hann verður gjaldgengur með liðinu á næstu leiktíð og verður spennandi að fylgjast með framtíð þessa unga leikmanns.

Public deli
Public deli

„Freyr er náskyldur Óðni Árnasyni, fyrrum leikmanni Grindavíkur, og standa vonir til að Freyr verði okkur Grindvíkingum happafengur líkt og frændi hans var á sínum tíma,“ segir á Facebooksíðu UMFG. 

Fjórir uppaldir leikmenn semja við Grindavík

Knattspyrnudeild Grindavíkur hefur skrifað undir tveggja ára samning við fjóra af ungum og uppöldum leikmönnum Grindavíkur. Þetta eru þeir Dagur Ingi Hammer Gunnarsson, Óliver Berg Sigurðsson, Símon Logi Thasaphong og Viktor Guðberg Hauksson. Allir hafa þeir komið við sögu í leikjum hjá Grindavík í sumar.