Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Frábær uppskera hjá Golfklúbbi Suðurnesja
Þegar Guðfinna var að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni var kvennastarf í golfklúbbum landsins ekki eins og við þekkjum í dag. Í dag er blómstrandi kvennastarf í GS og er það ekki síst fyrir tilstilli brautryðjandastarfi Guðfinnu og hennar samferðakvenna.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 10. desember 2020 kl. 11:32

Frábær uppskera hjá Golfklúbbi Suðurnesja

Guðfinna Sigurþórsdóttir gerð að heiðursfélaga

„Við getum áætlað að hafa orðið af um þrem milljónum vegna haustmóta sem féllu niður vegna Covid-19-lokunar,“ sagði formaðurinn, Ólöf Kristín Sveinsdóttir.

Aðalfundur Golfklúbbs Suðurnesja fór fram í síðastu viku. Í ljósi Covid-19-aðstæðna var fundurinn haldinn rafrænt á fundarkerfinu Teams. Metþátttaka var á fundinum en um 60 manns tóku þátt í honum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ólöf Kristín Sveinsdóttir, formaður klúbbsins, flutti skýrslu stjórnar og fór yfir það helsta sem átti sér stað á árinu. Óhætt er að segja að vel hafi gengið á öllum sviðum á árinu 2020, margkonar viðburðir voru haldnir og þátttaka félagsmanna góð. Mótin voru mörg, nýliðaviðburðir vel sóttir og kvennagolfið setti nýtt met í mætingu svo eitthvað sé nefnt. Völlurinn var í góðu standi og gekk reksturinn í heild mjög vel en klúbburinn skilaði sautján milljón króna hagnaði í ár. Þess má geta að Golfklúbbur Suðurnesja hefur enn ekki fengið sérstaka styrki frá sveitarfélögunum vegna Covid-19 eins og mörg önnur íþróttafélög hafa fengið. Þessi innkoma er kærkomin í sjóði félagsins enda er klúbburinn farinn að huga að endurnýjun á vélum og tækjum sem mörg hver eru komin til ára sinna.

Sigurpáll Geir Sveinsson, íþróttastjóri GS, flutti sína árlegu skýrslu og fór yfir það helsta sem snýr að þjálfun og keppni kylfinga GS. Kylfingar ársins 2020 eru Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Fjóla Margrét Viðarsdóttir. Venjan er að krýna kylfinga ársins á aðalfundi en þar sem ekki var hægt að halda hefðbundinn fund var brugðið á það ráð að boða þá sem valdir voru í Leiruna daginn fyrir fundinn og þeir krýndir í fámennum hópi og var myndband af athöfninni sýnt á Teams-fundinum.

Ólöf Kristín Sveinsdóttir mun halda áfram að gegna embætti formanns golfklúbbsins, aðrir í stjórn árið 2021 eru þau Karitas Sigurvinsdóttir, Rúnar Óli Einarsson, Sigurður Sigurðsson, Sveinn Björnsson, Arnar Ingólfsson, John Steven Berry, Páll Marcher Egonsson og Róbert Sigurðarson.

Guðfinna Sigurþórsdóttir heiðursfélagi GS

Guðfinna Sigurþórsdóttir, einn af stofnendum Golfklúbbs Suðurnesja, var gerð að heiðursfélaga á aðalfundinum. Guðfinna hefur verið félagi í Golfklúbbi Suðurnesja óslitið frá stofnun hans og verið virk í starfi klúbbsins. Hún varð fyrsti Íslandsmeistarinn í kvennaflokki og barðist fyrir því á árum áður að konur fengju sama rétt til keppnis og karlar en þegar hún var að stíga sín fyrstu skref var ekkert kvennastarf í golfklúbbum landsins eins og við þekkjum í dag. Guðfinna var krýnd heiðursfélagi á sama tíma og kylfingar ársins og var myndband af afhendingu heiðursskjalsins sýnt á fundinum. Þess má geta að Guðfinna er móðir Karenar Sævarsdóttur sem vann það ótrúlega afrek að verða Íslandsmeistari átta ár í röð.