Íþróttir

Fimm Suðurnesjamenn í körfuboltalandsliðinu
Hörður Axel Vilhjálmsson er leikjahæsti leikmaður Íslands með 86 landsleiki. VF-mynd/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 10. febrúar 2021 kl. 15:07

Fimm Suðurnesjamenn í körfuboltalandsliðinu

Landslið karla í körfubolta leikur tvo síðustu leiki sína í lokastigi undankeppni EM í Pristina í Kosovo 15.-21. Febrúar. Ísland þarf einn sigur til að gulltryggja sig áfram í aðal-undankeppnina sem verður í sumar. Fimm leikmenn frá Suðurnesjum eru í landsliðshópnum.

Íslenska liðið leikur í þessum glugga tvo lokaleiki sína í riðlinum og mætir fyrst liði Slóvakíu og svo Lúxemborg. Fyrri leikurinn verður fimmtudaginn 18. febrúar gegn Slóvakíu og sá síðari gegn Lúxemborg laugadaginn 20. febrúar. Báðir leikirnir verða í benni útsendingu á RÚV.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Tvö efstu lið riðilsins fara áfram og leika í ágúst um sæti í aðal-undakeppni HM í þriggja liða riðli, þar sem liðin úr undankeppni EM (sem fer fram á sama tíma í febrúar), bætast við. Það eru þau lið sem ekki komast á lokmamót EM og bætast við lokaumferð undankeppninnar fyrir HM 2023. 

Ísland er sem stendur í efsta sæti síns riðils með 7 stig og þarf einn sigur til að gulltryggja sæti sitt áfram.

Nafn · Félag (landsleikir)

Elvar Már Friðriksson · BC Siauliai, Litháen (48)

Gunnar Ólafsson · Stjarnan (22)

Hjálmar Stefánsson · CB Carbajosa, Spánn (18)

Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (86)

Jón Axel Guðmundsson · Fraport Skyliners, Þýskalandi (13)

Kári Jónsson · Girona Basket, Spánn (14)

Kristinn Pálsson · Grindavík (15)

Ólafur Ólafsson · Grindavík (38)

Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Haukar (49)

Sigtryggur Arnar Björnsson · Real Canoe, Spánn (12)

Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn (Nýliði)

Tómas Hilmarsson · Stjarnan (8)

Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spánn (41)

Eftirtaldir leikmenn gátu ekki tekið þátt að þessu sinni af ýmsum ástæðum:

Ægir Þór Steinarsson, Haukur Helgi Briem Pálsson, Kristófer Acox, Pavel Ermolinskij, Breki Gylfason og Collin Pryor.