Íþróttir

Fánadagur Þróttar 2019
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
þriðjudaginn 18. júní 2019 kl. 19:21

Fánadagur Þróttar 2019

Fánadagur Þróttar í Vogum er fimmtudaginn 20. júní og eru bæjarbúar hvattir til að klæðast fötum í litum félagsins og gera sér glaðan dag með því að mæta á völlinn og hvetja sína menn áfram gegn liði ÍR í 2. deildinni. Leikurinn hefst kl. 19:15.

Dagskrá hefst klukkustund fyrir leik þegar bæjarfulltrúar í Vogum kveikja upp í grillinu og fjörið heldur svo áfram á meðan leikurinn fer fram, í tilkynningu frá félaginu kemur fram að eftirfarandi bakhjarlar koma að þessum degi og styðja þetta framtak eru Vogabær ehf, Esja, Kjörís, Gæðabakstur og Kók á Íslandi.

  • Kveikt verður á grillinu klukkan 18:30
  • Vogabær, Esja, Kjörís, Gæðabakstur og Coke á Íslandi eru helstu bakhjarlar fánadags Þróttar
  • Þróttarar taka á móti ÍR í 2. deild kl. 19:15
  • Þróttaravarningur fyrir fyrstu gesti
  • Vonarstjörnur Þróttar leiða leikmenn til leiks
  • Andlitsmálning frá klukkan 18 til 19 í félagsmiðstöðinni
  • Frítt á völlinn
  • Íspinnar handa krökkunum
  • Grillaður burger fyrir leik og sannir Þróttarar verða á grillinu
  • Allir velkomnir


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024