Íþróttir

Erna, Júlía og Jóhanna í grænu næstu tvö árin
Kristín Örlygsdóttir formaður KKD UMFN ásamt þeim Jóhönnu, Júlíu og Ernu. Mynd: UMFN
Mánudagur 13. maí 2019 kl. 10:26

Erna, Júlía og Jóhanna í grænu næstu tvö árin

Fyrirliðinn Júlía Scheving Steindórsdóttir, Erna Freydís Traustadóttir og Jóhanna Lilja Pálsdóttir hafa allar samið við kvennalið Njarðvíkur í körfuknattleik til næstu tveggja ára. Allar þrjár eru mikilvæg púsl í heildarmynd kvennaliðsins sem vakti verðskuldaða athygli í vetur og ætla sér enn stærri hluti á komandi vertíð.
 
Júlía sem er 21 árs gömul var með 5,8 stig, 7,9 fráköst og 2,9 stoðsendingar að meðaltali í vetur og Erna Freydís sem er 19 ára og kom inn á miðri leiktíð var með 13 stig, 4 fráköst og 1,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Hin 18 ára gamla Jóhanna Lilja var með 11,7 stig, 4,7 fráköst og 1,8 stoðsendingu á leik.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024