Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Davíð Snær Jóhannsson sló leikjamet í U17
Þriðjudagur 26. mars 2019 kl. 18:10

Davíð Snær Jóhannsson sló leikjamet í U17

Keflvíkingurinn Davíð Snær Jóhannsson skoraði annað marka Íslands í sigurleik U17 gegn Slóveníu í milliriði EM í Þýskalandi. Ísland vann 2:1 og Keflvíkingurinn lék sinn 28. leik með landsliði sautján ára og yngri sem er met.

Fyrra metið áttu þeir Eiður Smári Guðjohnsen og Valur Fannar Gíslason sem léku með liðinu á árunum 1992–1997.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Íslands lék gegn heimamönnum Þýskalands á laugardag og lauk leiknum með 3:3 jafntefli, þá lék Ísland gegn Hvíta-Rússlandi á þriðjudag og vann stórsigur, 4:1. Með sigrinum endaði Ísland á toppi síns riðils og tryggðu strákarnir sér farseðilinn í lokakeppni EM 2019 sem fram fer í maí á Írlandi.

Davíð Snær var í byrjunarliði Íslands í öllum leikjunum þremur og er því kominn í 30 leiki fyrir U17 landslið Íslands.