Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Betra lið í hverri viku
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 6. maí 2022 kl. 08:03

Betra lið í hverri viku

Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Grindavíkur, segist vera brattur fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar. Alfreð tók við Grindavík síðasta haust en hann er sjálfur uppalinn Grindvíkingur, lék um 40 leiki í efstu deild með félaginu og skoraði fimm mörk.

Alfreð hóf þjálfaraferilinn með GG árið 2006 og hefur þjálfað lið Ægis í Þorlákshöfn, ÍBV, BÍ/Bolungarvík og síðustu fimm ár var hann með kvennalið Selfoss sem hann gerði meðal annars að bikarmeisturum árið 2019. Nú má segja að Alfreð sé kominn heim en hann gerði þriggja ára samning við Grindavík síðasta haust og segir undirbúningstímabilið hafa gengið mjög vel.

„Ég er bara brattur fyrir tímabilið, þetta er það sem við erum búnir að vera að æfa fyrir í allan vetur og erum fullir eftirvæntingar fyrir fyrsta leik,“ sagði Alfreð þegar Víkurfréttir heyrðu í honum en keppni í Lengjudeildinni hefst nú í vikunni. „Liðið er að slípast til og verið að fínstilla. Við erum búnir að vera að prófa alls kyns útfærslur og leikmenn í vetur en nú held ég að þetta sé að smella saman.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hver eru markmið sumarsins hjá ykkur Grindvíkingum?

„Markmiðið er að verða betra lið í hverri viku, bæta okkur sem leikmenn og lið. Þú færð mig ekki til að segja hvort við ætlum upp eða niður. Við munum einblína á okkur, leggja okkur fram við að bæta eigin leik, gera okkar besta og svo teljum við upp úr pokanum í haust.“

Þjálfarateymið á þessari leiktíð. F.v: Maciej Majewski, Milan Stefán Jankovic, Alfreð Elías Jóhannsson, Vladimir Vuckovic og Óttar Guðlaugsson.


Vilja endurspegla bæinn sinn

Þið hljótið nú að stefna á sæti í efstu deild, er Grindavík ekki lið sem á heima þar?

„Jú, að sjálfsögðu finnst okkur að Grindavík sé lið sem eigi heima í efstu deild og við munum gera okkar besta til að tryggja Grindavík sæti þar. Við viljum endurspegla bæjarfélagið okkar og sýna vinnusemi, einbeitingu og dugnað.“

Alfreð segir að stemmningin í bænum sé mjög jákvæð og hann skynji mikinn stuðning. „Við héldum stuðningsmannakvöld um daginn, vorum með sameiginlegt fyrir karla-, kvennaliðið og GG. Það er í fyrsta sinn í langan tíma sem við höldum þetta saman og það heppnaðist mjög vel, var vel sótt og fólk skemmti sér vel saman.

Ég hef ekki fundið fyrir neinu nema góðvild og hlýju frá bæjarbúum sem hlakka til tímabilsins eins og við. Svo þegar við byrjum að vinna leikina þá fjölgar í fallegu stúkunni okkar.“

Nú mætið þið Aftureldingu á útivelli í fyrsta leik. Hvernig leggst sá leikur í þig?

„Bara vel, við erum fullir tilhlökkunar að byrja – það verður gaman að sækja þrjú stig í Mosfellsbæ,“ segir Alfreð að lokum.

Markaskorarinn Sigurður Bjartur Hallsson skipti yfir í KR eftir síðasta tímabil og Alfreð segir að eðlilega muni Grindvíkingar sakna krafta hans. „Hann skoraði sautján mörk í fyrra, næstum helming allra marka liðsins – en nú þurfa aðrir leikmenn að stíga upp og taka boltann. Við þurfum að dreifa mörkunum á fleiri – ekki treysta á einhvern einn.“


Nýir leikmenn

Komnir: Kenan Turudija, Thiago Dylan Ceijas, Kario Edwards John, Vladimir Dadi Dimitrovski, Örvar Logi Örvarsson (lán), Tómas Leó Ásgeirsson, Dagur Ingi Hammer Gunnnarsson (til baka úr láni) og Hilmar McShane (til baka úr láni).