Íþróttir

Alfreð Elías nýr þjálfari Grindavíkur
Alfreð Elías Jóhannsson og Gunnar Már Gunnarsson handsala samninginn sem er gerður til þriggja ára. Mynd: UMFG
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 6. október 2021 kl. 21:57

Alfreð Elías nýr þjálfari Grindavíkur

Stjórn knattspyrnudeildar Grindavíkur hefur ráðið Alfreð Elías Jóhannsson sem þjálfara karlaliðs Grindavíkur í knattspyrnu. Alfreð gerir þriggja ára samning við Grindavík og mun hefja störf á næstu dögum.

Alfreð hefur undanfarin fimm ár þjálfað kvennalið Selfoss og gerði liðið meðal annars að bikarmeisturum árið 2019. Þar áður hefur hann þjálfað lið Ægis í Þorlákshöfn,  ÍBV, BÍ/Bolungarvík og GG þar sem hann hóf þjálfaraferilinn árið 2006.

Alfreð er uppalinn í Grindavík og að baki um 40 leiki með félaginu í efstu deild og skoraði fimm mörk fyrir félagið.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við erum afar ánægð með að ganga frá ráðningu á Alfreð sem nýjum þjálfara Grindavíkur. Það er mjög ánægjulegt að fá Alfreð heim til Grindavíkur. Við erum spennt að hefjast handa við að undirbúa næsta keppnistímabil og setja saman nýtt lið. Alfreð mun koma af krafti inn í starfið og hlökkum við til samstarfsins,“ segir Gunnar Már Gunnarsson, formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur.

Þjálfarateymi meistaraflokks karla hjá Grindavík verður kynnt í heild sinni á næstu dögum.

Með tilkynningu frá Grindavík skemmtilegt myndband þar sem Alfreð er boðinn velkominn heim, smellið hér til að sjá myndbandið.